Tíu nýjar hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla

Orkuveita Reykjavíkur, BL og Nissan undirrituðu í dag samning um uppbyggingu hleðslustöðvanets fyrir rafbíla á Íslandi. Nissan og BL leggja fram hraðhleðslustöðvarnar og ákveðna fjárhæð til uppsetningar þeirra. Orkuveitan mun sjá um staðarval, uppsetningu og rekstur stöðvanna í tvö ár að minnsta kosti. Gert er ráð fyrir að fyrstu stöðvarnar geti verið komnar í gagnið í haust. Vonir eru bundnar við að þetta samstarf stórauki notagildi rafbíla á landinu, en á þessum stöðvum verður hægt að hlaða rafbíla um 80% á 30 mínútum. Þjónustan verður ókeypis fyrst um sinn. Fyrirhugað er að byggja hraðhleðslustöðvarnar á aðgengilegum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannabyggðum.

Endanleg ákvörðun um staðsetningu hraðhleðslustöðvanna verður tekin á næstu vikum og mánuðum. Haft verður í huga að þær auki  vegalengdina sem hægt er að ferðast á rafbílum og auðveldi notendum að ferðast áhyggjulaust.

Fram kemur í fréttatilkynningunni að hraðhleðslustöðvarnar eru af gerðinni DBR. Þær fylgja svonefndum CHAdeMO staðli og verða aðgengilegar öllum rafbílum sem uppfylla þann staðal. Þær hafa verið settar upp í löndum eins og Noregi, Frakklandi, Bretlandi og víðar.

Sjá fréttina í heild sinni á heimasíðu OR.

Við undirskriftina í morgun, frá vinstri: Erla Gísladóttir forstjóri BL, Bjarni Bjarnason forstjóri OR og Frederic Subra

 

Osló-Norræna vetnis- og rafalaráðstefnan 30.okt-1.nóv 2013

 

Þann 30 október hefst ráðstefna í Osló um verkefni Akershus/-Oslo um hreintækni á vegum sveitarfélagsins ( www.cleantransport.no ). Sú ráðstenfa stendur í einn og hálfan dag ( til kl 3) en strax á eftir fylgir norræna vetnis- og rafalaráðstefnan sjá www.hydrogen.no/hfcnordic . Í Noregi er nú að finna stóran flota rafhleðslubíla og rafhleðslustöðva. Einnig verður ítarlega fjallað um notkun Oslóborgar á vetnisstrætisvögnum og  vetnisbílanna sem keyptir voru í vor frá Koreu.

Á síðari hluta ráðstefnunnar verður greint  frá markasðetningu, samvinnu á Norðurlöndunum, nýjustu rannsóknum og verkefnum með nýjustu vetnis- og rafgeymanotkun í samgöngum. Drög að dagskrá má finna hér.

Rafhleðsla undir malbiki – framtíðin?

Í borginni Gumi í Suður-Kóreu eru tveir strætisvagna sem fá þráðlausa rafhleðslu, þetta fer þannig fram að rafstrætóar keyra yfir svæði í malbikinu þar sem þeir fá rafhleðslu. Strætóleiðin sem um er að ræða er 25 km löng en þegar vagninn ekur yfir hleðslu-svæðin flyst rafmagn með segulspennu í rafgeymana án þess að hann þurfi að hægja á ferð sinni.

Sjá nánar á mbl.is

 

Nordic Biogas Conference, NBC 2014

Við viljum benda ykkur á ráðstefnu sem haldin verður í Reykjavík á næsta ári, nánar tiltekið 27-29 ágúst 2014.

Þessi ráðstefna er sú stærsta sinnar tegundar á Norðurlöndunum þar sem fjallað er um smærri hauggaskerfi, hráefni úr sjó, fljótandi metan, hauggas, CBG/LNG, landflutninga og sjóflutninga en einnig um þróun innan geirans.

Frekari upplýsingar: www.nordicbiogas.com

 

 

Rafbílaakstur og kynning næstkomandi fimmtudag.

Næstkomandi fimmtudag, þann 15. ágúst kl. 17:00 verður meðlimum Grænu Orkunnar boðið á kynningu og akstursýningu á Rallycrossbrautinni í Hafnarfirði. Þar mun fara fram síðasti akstur FSI 12 bílsins, sem er jafnframt fyrsti akhæfi bíllinn sem smíðaður hefur verið hjá Háskóla Íslands. Auk þess verður kynnt fyrir áhugasömum gengi verkefnisins frá upphafi, árangur liðsins í keppninni og bíl næsta árs yfir léttum veitingum.

Þessi viðburður er á vegum Formula Student verkefnis Háskóla Íslands og hafa nemendurnir áhuga á að ná tali af áhugamönnum um málefnið. Þetta umrædda verkefni snýst fyrst og fremst um að þróa og hanna eins manns rafmagnskappakstursbíl sem liðið síðan smíðar frá grunni, prófar og keppir loks á í alþjóðlegri kappaksturskeppni undir heitinu Formula Student.

Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Fyrir frekari upplýsingar um verkefnið er hægt að skoða eftirfarandi vefsíður;

https://www.facebook.com/FSIceland

http://teamspark.is/

 

Afhending 12 rafbíla til fyrirtækja

Tólf rafbílar voru afhentir í gær við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum Heklu í Reykjavík í gær þar sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra ávarpaði samkomuna.

„Þetta er merkilegur dagur. Aldrei fyrr hafa svo margir rafbílar verið afhentir á einu bretti á Íslandi. Þetta kann að vera eitt af stóru skrefunum í átt að umhverfisvænna samfélagi á Íslandi. Við ásamt Íslenskri Nýorku náðum virkilega hagstæðum samningum við Mitsubishi um verð á i-MiEV rafbílum og það verð endurspeglar þær væntingar sem HEKLA og Mitsubishi hafa til Íslands sem markaðar fyrir rafbíla.“ sagði Friðbert Friðbertsson, forstjóri HEKLU hf við afhendinguna í gær.

Það eru átta fyrirtæki sem fengu afhenta lykla af splúnkunýjum Mitsubishi iMiEV rafbílum; Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun, Eignarsjóður Reykjavíkur,  Landsnet, Skeljungur, HS orka, Norðurorka og Bílastæðasjóður. Með kaupum á bílunum eru fyrirtækin að stíga skref í átt að umhverfisvænni bílaflota og um leið vekja athygli á því að rafbílar eru raunhæfur valkostur fyrir almenning sem og bílaflota fyrirtækja.

Upphaf kaupanna í dag má rekja til samkomulags sem gert var milli Mitsubishi, HEKLU, Orkustofnunar og Iðnaðarráðuneytisins árið 2008 í tengslum við kaup á hverflum fyrir jarðhitavirkjanir og hefur Íslensk NýOrka leitt það verkefni. Ljóst er að verulega er hægt að draga úr umhverfisáhrifum frá samgöngum með fjölgun bíla sem nota vistvænt eldsneyti. Nú þegar hafa á annað þúsund metan bíla verið skráðir en mikið átak þarf til að ná markmiðum opinberra aðila sem er að 10% alls eldsneytis á bíla á Íslandi verði vistvænt árið 2020. „Þetta er stórt skref í rétta átt. En við getum gert betur og vonandi munu fleiri fyrirtæki og einstaklingar nýta sér þetta tilboð,“ segir Jón Björn Skúlason framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku.

Mitsubishi iMiEV rafbílar verða tímabundið á kynningakjörum hjá Heklu, á meðan birgðir endast.

Mitsubishi iMiEV við afhendiguna í gær

Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og Ragnheiður Elín iðnaðarráðherra

Hér má sjá umfjöllun mbl.is

Hér má sjá umfjöllun visir.is