BEGIN:VCALENDAR
PRODID:-//Græna Orkan//NONSGML v1.0//EN
VERSION:2.0
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Græna Orkan
X-ORIGINAL-URL:https://graenaorkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Græna Orkan
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260430T003013
CREATED:20160212T083523
LAST-MODIFIED:20160212T124735
UID:1300@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Alþjóðleg ráðstefna um þróun bíl- og skipavéla knúnar metanóli 
DESCRIPTION:Græna orkan vill vekja athygli á fyrstu alþjóðlegu ráðstefnunni um þróun bíl- og skipavéla knúnar metanóli, sem haldin er af Carbon Recycling International. Hún ber yfirskriftina Ráðstefna um þróun bíl- og skipavéla knúnar metanóli til að efla umhverfisvænar samgöngur á sjó og landi.    Ráðstefnan mun veita breiða sýn yfir nýsköpun sviði umhverfisvænni bíl- og skipavéla undanfarin misseri, en þróun tækni til að nýta metanól er hröð, ekki síst þar sem krafa um orkuskipti með sjálfbæru eldsneyti fer vaxandi, bæði í samgöngum á sjó og landi og í sjávarútvegi. Dagskrá má finna hér.    Ráðstefnan verður haldin þriðjudaginn 23. febrúar n.k. í Gullteigi á Grand Hotel, Reykjavík. Aðgangur er öllum opinn. Boðið verður upp á kaffiveitingar og léttan hádegisverð. Skráning til þátttöku skal berast í netfangið conference@cri.is.    Fyrirlesarar eru helstu alþjóðlegu sérfræðingar á sviði bílvéla og véla fyrir skip og báta sem knúnar eru metanóli, fjallað verður um sprengihreyfla, tengiltvinnbíla og efnarafala.    Efni ráðstefnunnar ætti að höfða til allra sem áhuga hafa á umhverfisvænni lausnum í samgöngum og í sjávarútvegi og verður þar varpað nýju ljósi á ögranir og möguleika á þessu sviði.    Þá verður hulunni svipt af fyrstu bílunum sem ganga fyrir hreinu metanóli, frá bílaframleiðandum Geely sem er hluthafi í CRI. Prófanir á þessum bílum eru að hefjast hér á landi, í samvinnu CRI, Geely og Brimborgar.    Meðal sérfræðinga á ráðstefnunni eru yfirmenn rannsókna og þróunar Geely bílaverksmiðjanna og Fiat Chrysler samsteypunnar, sem unnið hafa að þróun bílvéla fyrir metanól og helsti ráðgjafi Wärtsilä í Finnlandi sem er meðal þeirra fyrirtækja sem nú framleiða metanólvélar fyrir skip og báta. Þá tala m.a. sérfræðingar frá MIT háskólanum í Boston, Chalmers tækniháskólanum í Gautaborg, Ghent háskóla og tækniháskólanum í Kaupmannahöfn um stöðu og horfur í þróun véla og tæknibúnaðar.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1300
END:VEVENT
END:VCALENDAR