BEGIN:VCALENDAR
PRODID:-//Græna Orkan//NONSGML v1.0//EN
VERSION:2.0
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Græna Orkan
X-ORIGINAL-URL:https://graenaorkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Græna Orkan
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260419T145524
CREATED:20160313T201620
LAST-MODIFIED:20160313T201620
UID:1312@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Samráðsfundur Grænu orkunnar vegna aðgerðaáætlunar um orkuskipti í samgöngum
DESCRIPTION:Í nóvember síðastliðnum kynnti umhverfisráðherra sóknaráætlun ríkisstjórnar Íslands í loftslagsmálum sem sett var fram í tengslum við COP21 í París, aðildarríkjafund Loftslagssamingsins. Áætlunin er til þriggja ára og byggir á sextán verkefnum sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka bindingu  kolefnis úr andrúmslofti, styðja alþjóðleg loftslagsverkefni og efla getu stjórnvalda  til að standa við strangari skuldbindingar  í loftslagsmálum.    Átta verkefni hafa það markmið að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og leggja stjórnvöld áherslu á samstarf stjórnvalda og atvinnulífs í flestum þessara áhersluverkefna. Stjórnvöld hafa kallað Grænu Orkuna til samstarfs vegna verkefnisins Orkuskipti í samgöngum. Skipaður hefur verið starfshópur á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Grænu orkunnar sem hefur hafið vinnslu tillagna að aðgerðum til ná markmiðum sem íslensk stjórnvöld hafa sett sér um að hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum nái 10% árið 2020. Starfshópurinn hefur undanfarna tvo mánuði fundað með hagsmunaaðilum tengdum samgöngum á landi, haftengdri starfsemi sem og flugsamgöngum, og boðar nú til samráðsfundar félaga Grænu Orkunnar.    Opinn samráðsfundur Grænu Orkunnar verður haldinn að Grensásvegi 9, 17. mars 2016, klukkan 9. Á fundinum mun vinnuhópur kynna drög að aðgerðaáætlun og í kjölfarið munu fara fram umræður. Hér gefst tækifæri fyrir félaga Grænu Orkunnar til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og eru félagar hvattir til þess að mæta og taka virkan þátt í umræðum.    Þátttaka er opin öllum félögum Grænu orkunnar og er ókeypis. Vinsamlega skráðu þig til þátttöku með tölvupósti í netfangið amk@newenergy.is    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1312
END:VEVENT
END:VCALENDAR