BEGIN:VCALENDAR
PRODID:-//Græna Orkan//NONSGML v1.0//EN
VERSION:2.0
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Græna Orkan
X-ORIGINAL-URL:https://graenaorkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Græna Orkan
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260418T174106
CREATED:20160909T145518
LAST-MODIFIED:20160909T145518
UID:1421@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Alþjóðleg ráðstefna um lífhagkerfið og niðurstöður NordBio verkefna
DESCRIPTION:Ísland og Norræna ráðherranefndin boða til alþjóðlegrar ráðstefnu um lífhagkerfið og niðurstöður NordBio verkefna í Hörpu 5.-6. október 2016.  Yfirskrift ráðstefnunar er: MINDING THE FUTURE. Bioeconomy in a changing Nordic reality.     Meðal fyrirlesara eru Christine Lang, formaður þýska lífhagkerfisráðsins, Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Lene Lange, prófessor í lífefnafræði við Tækniháskólann í Kaupmannahöfn, Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands og Bryan Alexander, framtíðarfræðingur og rithöfundur. Þá munu Gunnar Bragi Sveinsson, ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála og Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar flytja opnunarerindi. Ráðstefnustjórn verður í höndum Þóru Arnórsdóttur og Stefáns Gíslasonar.    Ráðstefnan fer fram á ensku og skiptist í gagnvirka fyrirlestra og málstofur,  Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast hér.  Þátttökugjald er 15.000. Innifalið eru kaffiveitingar og hádegisverður. Skráningargjaldið hækkar í 20.000 þann 10. september.  Mikilvægt er að skrá þátttöku hér.    Ráðstefnan er lokahnykkur NordBio áætlunarinnar, sem er þriggja ára verkefni (2014-2016 ) um lífhagkerfið undir formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Undir merkjum NordBio hefur breiður hópur sérfræðinga á Norðurlöndum sameinað krafta sína og unnið að verkefnum sem stuðla að sjálfbærri nýtingu lifandi náttúruauðlinda. Markmið NordBio er að gera Norðurlöndin leiðandi í sjálfbærri framleiðslu og nýtingu lífauðlinda í því skyni að draga úr sóun og efla nýsköpun, grænt atvinnulíf og byggðaþróun.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1421
END:VEVENT
END:VCALENDAR