BEGIN:VCALENDAR
PRODID:-//Græna Orkan//NONSGML v1.0//EN
VERSION:2.0
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Græna Orkan
X-ORIGINAL-URL:https://graenaorkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Græna Orkan
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260429T223036
CREATED:20230505T094212
LAST-MODIFIED:20230831T143249
UID:2355@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur Grænu orkunnar 25. maí 2023
DESCRIPTION: Aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, fer fram fimmtudaginn 25. maí 2023 13:00-15:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35    Dagskrá aðalfundar verður sem hér segir og samkvæmt samþykktum:      Kosning fundarstjóra og fundarritara    Skýrsla stjórnar lögð fram    Reikningar lagðir fram til samþykktar    Breytingar á samþykktum    Ákvörðun árgjalds    Kosning stjórnar    Önnur mál      Allir félagsmenn mega sitja aðalfund og einungis er eitt atkvæði á hvert aðildarfyrirtæki eða -stofnun. Félagar teljast þeir sem greiða félagsgjald og þeir einir hafa atkvæðarétt á aðalfundi. Reikningar fyrir aðildargjöldum 2023 ættu þegar að hafa borist til aðildarfyrirtækja og hafa eindaga 1. maí.    Tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði til afgreiðslu á fundinum, þurfa að berast félaginu a.m.k. 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund, þ.e. 18. maí 2023, til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is.    Tímabil tveggja stjórnarmanna sem sitja fyrir hönd atvinnulífsins lýkur á aðalfundinum. Þeir hyggjast bjóða sig fram til áframhaldandi stjórnarsetu en framboð til stjórnar eru velkomin og er stjórnarseta til tveggja ára.    Þeir félagar er hyggjast bjóða sig fram í stjórn skulu tilkynna framboð til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is fyrir lok dags 18. maí 2023.    Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum fer fram málstofa sem ber yfirskriftina Nei, það er ekki pláss fyrir einn bensínbíl í viðbót. Egill Jóhannsson framkvæmdastjóri Brimborgar og María Jóna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins munu kynna og fara yfir vegasamgöngulíkan sem unnið hefur verið að í kjölfar samstarfsverkefnis atvinnulífs og stjórnvalda, Loftslagsvegvísir atvinnulífsins (LVA).    Í lok fundarins verða niðurstöður kosninga kynntar og fundi slitið um klukkan 15:00. Boðið verður upp á léttar veitingar.    Fundargerd-adalfundar-Graenu-orkunnar-2023-1Download 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2355
END:VEVENT
END:VCALENDAR