BEGIN:VCALENDAR
PRODID:-//Græna Orkan//NONSGML v1.0//EN
VERSION:2.0
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Græna Orkan
X-ORIGINAL-URL:https://graenaorkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Græna Orkan
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20250324T103428
LAST-MODIFIED:20250513T094257
UID:2570@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur 2025
DESCRIPTION: Hvað eruð þið að gera í orkuskiptum? – Segðu okkur frá        Í tengslum við Aðalfund Grænu Orkunnar (Samstarfsvettvangs um orkuskipti) sem haldinn verður 27. maí kl. 14:00-16:30, í Borgartúni 35 ætlum við að halda vinnustofu um hvað er að gerast í orkuskiptum á Íslandi.    Við viljum heyra frá þér, meðlimum Grænu Orkunnar, hvað er að gerast. Markmiðið er að hafa örfyrirlestraform, þ.e. 8-10 mín erindi.    Láttu okkur vita ef þú vilt halda örfyrirlestur um hvað þitt fyrirtæki er að gera í orkuskiptum, ribes@newenergy.is.    Viðburðurinn verður opinn öllum og í streymi, þannig að allir geti haldið erindi og/eða hlustað hvar á landi sem er.    Gert er ráð fyrir að hefðbundin aðalfundarstörf taki 15-30 mín og að vinnustofan hefjist í kjölfarið, eða um 14:30.&nbsp;    Nánar um aðalfundarstörf síðar.    Í boði eru tvö stjórnarsæti og 2 sæti varmanna.    Í öðru stjórnarsætinu situr Guðmundur Ingi frá Blæ og hann gefur áfram kost á sér til stjórnarsetu.    Við óskum eftir framboðum til stjórnarsetu. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2570
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20240409T142140
LAST-MODIFIED:20240503T134213
UID:2522@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur Grænu orkunnar 2024
DESCRIPTION:     Aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, fór fram þriðjudaginn 30. apríl 2024 13:00-15:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35    Dagskrá aðalfundar verður sem hér segir og samkvæmt samþykktum:     Kosning fundarstjóra og fundarritara    Skýrsla stjórnar lögð fram    Reikningar lagðir fram til samþykktar    Breytingar á samþykktum    Ákvörðun árgjalds    Kosning stjórnar    Önnur mál     Allir félagsmenn mega sitja aðalfund og einungis er eitt atkvæði á hvert aðildarfyrirtæki eða -stofnun. Félagar teljast þeir sem greiða félagsgjald og þeir einir hafa atkvæðarétt á aðalfundi.     Hægt er að nálgast ársskýrslu félagsins hér.    Í kjölfar stefnumótunarvinnu á undanförnu starfsári leggur stjórn til all nokkrar breytingar á samþykktum félagsins sem endurspegla breytta stöðu í orkuskiptum en einnig markmið stjórnvalda. Sjá í skjali hér neðar:    Breytingatillogur-a-samthykktum-Adalfundur-Graenu-orkunnar-2024-1Download    María Jóna, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, hélt erindi í lok aðalfundar. Glærur hennar má skoða hér:    Bilgreinasambandid-stada-orkuskipta-april-2024Download 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2522
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20231114T113741
LAST-MODIFIED:20231114T113741
UID:2469@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Viðburður 21. nóvember: Engin orkusóun
DESCRIPTION:     Landsvirkjun, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Orkustofnun hafa látið vinna ítarlega skýrslu um orkunýtni á Íslandi. Markmið vinnunnar var að varpa ljósi á tækifæri til bættrar orkunýtni hér á landi. Kortlagðar voru þær aðgerðir sem eru tæknilega og fjárhagslega framkvæmanlegar og mat lagt á stærð þeirra.    Danska ráðgjafarstofan Implement vann skýrsluna, en hún býr yfir mikilli sérfræðiþekkingu á orkumálum og orkunýtni. Helstu niðurstöður skýrslunnar verða kynntar á vefviðburði þriðjudaginn 21. nóvember.  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2469
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20230929T134159
LAST-MODIFIED:20230929T134159
UID:2447@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Ný skýrsla um stöðu kvenna í orku- og veitugeiranum sýnir að lítil breyting hefur orðið á stöðu kynjajafnréttis þegar kemur að ákvörðunar- og áhrifavaldi
DESCRIPTION: Staða kvenna í orku- og veitugeiranum miðað við síðustu skýrslu, sem kom út 2021    Í vikunni gáfu Konur í orkumálum út fjórðu skýrsluna um áhrifa- og ákvörðunarvald kvenna í 12 stærstu orku- og veitufyrirtækjum á Íslandi. Skýrslan er gefin út annað hvert ár í samstarfi við EY og kom fyrst út árið 2017.    Helstu niðurstöður skýrslunnar 2023     Ákvörðunarvald og ábyrgð kvenna hefur farið úr 36 prósentustigum niður í 32%    Ennþá gegnir aðeins ein kona stöðu æðsta stjórnanda í þessum 12 fyrirtækjum úrtaksins    Frá síðustu útgáfu hafa fimm nýir forstjórar verið ráðnir, fjórir karlar en einungis ein kona    Tækifæri voru til að ráða fleiri konur í framkvæmdastjórn á síðustu 2 árum en í staðinn lækkaði hlutfall kvenna    Kvenkyns stjórnarformönnum hefur fækkað um 25%, eru nú aðeins þriðjungur    Enginn kvenkyns framkvæmdastjóri yfir 60 ár    Tvöfalt fleiri kvk en kk framkvæmdastjórar á aldursbilinu 30-44 ára    Vísbendingar um að forveri sé viðmið í ráðningum     Sjá nánar hér. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2447
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20230817T100023
LAST-MODIFIED:20230817T100024
UID:2407@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Tilnefningar óskast til Nýsköpunarverðlauna Samorku 2023!
DESCRIPTION:     Samorka óskar eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna Samorku, sem afhent verða á sérstökum nýsköpunarviðburði í haust og verður dagsetning kynnt innan skamms. Þetta er í þriðja sinn sem verðlaunin verða afhent.    Samorka leitar að framúrskarandi nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem byggja á:    💡 Orku- og/eða veitutengdum tæknilausnum eða þjónustu við orku- og veitufyrirtæki💡 Nýtingu orku, heits vatns, neysluvatns eða fráveitu og/eða annarra auðlindastrauma til nýsköpunar    Tilnefningar sendist á samorka@samorka.is fyrir 20. ágúst. Farið verður með tilnefningarnar sem trúnaðarmál. Sjá nánar á vef Samorku. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2407
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20230609T104543
LAST-MODIFIED:20230628T091440
UID:2388@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Loftslags vegvísar atvinnulífsins kynntir
DESCRIPTION: Samstarfsaðilar verkefnahóps Loftslagsvegvísa atvinnulífsins    Í byrjun júní afhentu ellefu atvinnugreinar Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra 332 tillögur að aðgerðum sem stuðla eiga að auknum samdrætti í losun atvinnugreina. Afhendingin fór fram á Grænþingi í Hörpu 8. júní, í tengslum við útgáfu Loftslagsvegvísa atvinnulífsins (LVA). LVA er samstarfsverkefni atvinnulífs og stjórnvalda og var vinnan unnin á forsendum fyrirtækja í íslensku atvinnulífi með stuðningi frá vinnuteymi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.    Loftslagsvegvísar atvinnulífsins eru lifandi skjöl sem verða uppfærð reglulega, en einnig verður hægt að bæta við atvinnugreinum eftir því sem verkefninu vindur fram. Vefsíða verkefnisins heldur utan um vegvísa fyrir hverja atvinnugrein ásamt uppfærðum aðgerðum og framvindu þeirra. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2388
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20230608T103337
LAST-MODIFIED:20230608T103338
UID:2383@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Ársfundur Orkustofnunar 2023 - Orka, vatn og jarðefni
DESCRIPTION: Ársfundur Orkustofnunar verður haldinn í Norðurljósum í Hörpu föstudaginn 9. júní á milli kl. 9 til 11:30. Húsið opnar kl: 8:30 og boðið er upp á morgunhressingu. Skráning á viðburðinn fer fram á síðu Orkustofnunar.    Dagskrá verður á þessa leið     Ávarp umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson    Ávarp orkumálastjóra Halla Hrund Logadóttir frá Orkustofnun    Skilvirkni stjórnsýslu á tímum orkuskipta og nýsköpunar    Leyndardómar leyfisveitinga Marta Rós Karlsdóttir, Ph.D. sviðsstjóri sjálfbærrar auðlindanýtingar    Örerindi    Skilvirkari stjórnsýsla - eingreiðslur vegna umhverfisvænnar orkuöflunar Eyrún G. Káradóttir, verkefnastjóri Orkuseturs    Áður en lengra er haldið, mikilvægi framtíðarsýnar í stjórnsýslu Sigurjón Njarðarson, lögfræðingur auðlindanýtingar og Tinna Jónsdóttir, verkefnastjóri auðlindaeftirlits    Raforkuöryggi – markaður, tækifæri og áskoranir    Raforkuöryggi í þágu almennings - Hanna Björg Konráðsdóttir, deildarstjóri raforkueftirlits Orkustofnunar    Örerindi    Orkuhermirinn: Hvernig metum við raforkuöryggi á Íslandi Dagur Helgason, sérfræðingur í greiningu orkumarkaða – Greining á orkulíkaninuGögn og greiningar - vannýtta auðlindin Björn Arnar Hauksson, deildarstjóri greininga og gagnavinnsluOrkusjóður, tenging á milli fortíðar og framtíðar Eyrún G. Káradóttir, verkefnastjóri OrkusetursLokaorð Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, fv. Forseti Íslands     Fundarstjórn Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2383
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20230505T094212
LAST-MODIFIED:20230831T143249
UID:2355@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur Grænu orkunnar 25. maí 2023
DESCRIPTION: Aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, fer fram fimmtudaginn 25. maí 2023 13:00-15:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35    Dagskrá aðalfundar verður sem hér segir og samkvæmt samþykktum:      Kosning fundarstjóra og fundarritara    Skýrsla stjórnar lögð fram    Reikningar lagðir fram til samþykktar    Breytingar á samþykktum    Ákvörðun árgjalds    Kosning stjórnar    Önnur mál      Allir félagsmenn mega sitja aðalfund og einungis er eitt atkvæði á hvert aðildarfyrirtæki eða -stofnun. Félagar teljast þeir sem greiða félagsgjald og þeir einir hafa atkvæðarétt á aðalfundi. Reikningar fyrir aðildargjöldum 2023 ættu þegar að hafa borist til aðildarfyrirtækja og hafa eindaga 1. maí.    Tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði til afgreiðslu á fundinum, þurfa að berast félaginu a.m.k. 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund, þ.e. 18. maí 2023, til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is.    Tímabil tveggja stjórnarmanna sem sitja fyrir hönd atvinnulífsins lýkur á aðalfundinum. Þeir hyggjast bjóða sig fram til áframhaldandi stjórnarsetu en framboð til stjórnar eru velkomin og er stjórnarseta til tveggja ára.    Þeir félagar er hyggjast bjóða sig fram í stjórn skulu tilkynna framboð til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is fyrir lok dags 18. maí 2023.    Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum fer fram málstofa sem ber yfirskriftina Nei, það er ekki pláss fyrir einn bensínbíl í viðbót. Egill Jóhannsson framkvæmdastjóri Brimborgar og María Jóna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins munu kynna og fara yfir vegasamgöngulíkan sem unnið hefur verið að í kjölfar samstarfsverkefnis atvinnulífs og stjórnvalda, Loftslagsvegvísir atvinnulífsins (LVA).    Í lok fundarins verða niðurstöður kosninga kynntar og fundi slitið um klukkan 15:00. Boðið verður upp á léttar veitingar.    Fundargerd-adalfundar-Graenu-orkunnar-2023-1Download 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2355
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20221128T105539
LAST-MODIFIED:20221128T105540
UID:2292@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Horizon Europe á sviði loftslagsmála, orku og samgangna
DESCRIPTION:     Rafrænir upplýsingadagar og tengslaráðstefna Framkvæmdastjórnar ESB verður haldin 15. og 16. desember nk. í tengslum við vinnuáætlun klasa 5 (Climate, Energy &amp; Mobility).    Á upplýsingadögunum verða kynnt rannsóknar- og nýsköpunarviðfangsefni næstu vinnuáætlunar fyrir árin 2023-2024 en einnig verður rætt um fjármögnunarmöguleika samkvæmt nýju vinnuáætluninni.    Sjá nánar á vef Rannís. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2292
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20220503T113149
LAST-MODIFIED:20220505T134545
UID:2256@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur Grænu orkunnar og málþing um orkuskipti til 2030
DESCRIPTION:     Aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, fer fram fimmtudaginn 5. maí 2022 13:30-16:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.    Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Orkuskipti: Umbreytingar til 2030. Fyrir þá sem það kjósa, verður hægt að fylgjast með í streymi. Skráning á viðburðinn fer fram hér.    Dagskráin verður eftirfarandi:     13:30 Fundarsetning    13:40 John Winterbourne, Ballard Power Systems    14:00 Ómar Sigurbjörnsson, Carbon Recycling International    14:20 Auður Nanna Baldvinsdóttir, Samtökum vetnis- og rafeldsneytisframleiðenda    14:40 Hefðbundin aðalfundarstörf    15:15 Fundarslit    Boðið verður upp á léttar veitingar að lokinni dagskrá.     Skýrslu stjórnar má nálgast hér.    Skyrsla-stjornar-Graenu-orkunnar-2021-2022-lokaDownload    Fyrir þá sem mæta í Borgartún er gott að hafa í huga að strætisvagnar 4, 12, og 16 ganga þangað og auðvelt er að nálgast rafskútur víðs vegar um borgina sem má nota til að komast á leiðarenda. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2256
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20220420T114014
LAST-MODIFIED:20220504T104649
UID:2250@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur Grænu orkunnar 5. maí 2022
DESCRIPTION:    Aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, fer fram fimmtudaginn 5. maí 2022 13:30-15:30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Dagskrá aðalfundar verður sem hér segir og samkvæmt samþykktum:  Kosning fundarstjóra og fundarritara Skýrsla stjórnar lögð fram Reikningar lagðir fram til samþykktar Breytingar á samþykktum Ákvörðun árgjalds Kosning stjórnar Önnur mál  Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum fer fram málstofa sem ber yfirskriftina Orkuskipti: Umbreytingar til 2030. Boðið verður upp á erindi frá ýmsum aðilum sem tengjast eldsneytisframleiðslu og -dreifingu, bæði hefðbundnu kolvetni og vistvænu eldsneyti. Í lok fundarins verða niðurstöður kosninga kynntar og fundi slitið um klukkan 15:30. Allir félagsmenn mega sitja aðalfund og einungis er eitt atkvæði á hvert aðildarfyrirtæki eða -stofnun. Félagar teljast þeir sem greiða félagsgjald og þeir einir hafa atkvæðarétt á aðalfundi. Félagsgjald er kr. 50.000 fyrir fyrirtæki með fleiri en 25 starfsmenn en kr. 12.500 fyrir minni fyrirtæki og einstaklinga. Reikningar fyrir aðildargjöldum 2022 ættu þegar að hafa borist til aðildarfyrirtækja og hafa eindaga 4. maí. Tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði til afgreiðslu á fundinum, þurfa að berast félaginu a.m.k. 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund, þ.e. 28. apríl 2022, til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is. Tímabil tveggja stjórnarmanna sem sitja fyrir hönd atvinnulífsins lýkur á aðalfundinum. Þeir hyggjast bjóða sig fram til áframhaldandi stjórnarsetu en framboð til stjórnar eru velkomin og er stjórnarseta til tveggja ára. Þeir félagar er hyggjast bjóða sig fram í stjórn skulu tilkynna framboð til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is fyrir 28. apríl 2022. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2250
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20220405T140102
LAST-MODIFIED:20220405T140103
UID:2243@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Ársfundur Grænvangs 5. apríl
DESCRIPTION: Ársfundur Grænvangs, samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir, var haldinn þriðjudaginn 5. apríl kl. 14-16 á Grand Hótel Reykjavík. Honum var einnig streymt á vefsíðu Grænvangs en þar má nálgast upptöku að fundinum loknum.     https://player.vimeo.com/video/695652402?h=d2056ed8d8&amp;autoplay=1&amp;title=0&amp;byline=0&amp;portrait=0     Ársfundur Grænvangs 2022. Samstíga á árungursríkri loftslagsvegferð, Þáttur atvinnulífsins í orkuskiptum Íslands. from Íslandsstofa on Vimeo. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2243
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20211206T150332
LAST-MODIFIED:20211206T150333
UID:2222@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Viðburður 8. desember: Orkuskipti á hafi
DESCRIPTION:     Samorka, ásamt Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Faxaflóahöfnum og Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, bjóða til kynningar DNV á nýrri skýrslu um orkuskipti á hafi. Kynningin verður haldin í Kaldalóni, Hörpu, miðvikudaginn 8. desember.    Dagskrá:    Ávarp: Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherraPáll Erland, framkvæmdastjóri SamorkuHeiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFSGunnar Tryggvason, sviðsstjóri viðskipta hjá FaxaflóahöfnumNicolai Hydle Rivedal, umhverfisverkfræðingur hjá DNV    Fundarstjóri: Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku    Allir velkomnir í Hörpu og aðgangur er ókeypis. Framvísa þarf gildu hraðprófi við inngang í salinn.    Skráning til þátttöku í sal fer fram hér. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2222
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20211202T112833
LAST-MODIFIED:20211202T112834
UID:2217@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Umsóknarfrestur í Loftslagssjóð 9. desember!
DESCRIPTION:     Opið er fyrir umsóknir í Loftslagssjóð til 9. desember næstkomandi klukkan 15.    Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Sjóðurinn styrkir nýsköpunarverkefni og fræðslu- og kynningarverkefni sem stuðla að samdrætti í losun eða hafa áhrif á samdrátt í losun.     Að þessu sinni er boðið er upp á tvær tegundir styrkja til eins árs:    Styrki til nýsköpunarverkefna sem m.a. er ætlað að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við aðlögun og innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnunStyrki til kynningar og fræðslu um loftslagsmál    Sjá nánar á vef Rannís. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2217
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20211108T091723
LAST-MODIFIED:20211108T091725
UID:2213@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Viðburður 11. nóvember: Staða hleðsluinnviða fyrir rafbíla og notkun þeirra á Íslandi
DESCRIPTION: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fól Íslenskri Nýorku að gera óformlega netkönnun á stöðu hleðslustöðva fyrir rafbíla og notkun þeirra á meðal rafbílaeigenda í sumar. Verkefnið er unnið fyrir starfshóp ráðuneyta um orkuskipti og fór könnunin fram í júlí og ágúst 2021.    Tilgangur könnunarinnar var að athuga hvar í hleðslukerfi landsins eru flöskuhálsar, ef einhverjir. Könnunin átti að gefa vísbendingar um hvar mest væri hlaðið og hvort nauðsynlegt sé að veita frekara fjármagni til uppbyggingar innviða fyrir rafbíla um landið allt.    Á þessum viðburði mun Anna Margrét Kornelíusdóttir, verkefnastjóri hjá Íslenskri Nýorku, kynna helstu niðurstöður könnunarinnar. Hann fer fram á Zoom klukkan 13, fimmtudaginn 8. nóvember og er öllum opinn.  Lykilorð til að komast inn á fundinn er 7913. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2213
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:20210908
DTEND:20210909
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20210907T104710
LAST-MODIFIED:20211005T102943
UID:2200@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Viðburður 30. september: Orkuskipti á flugvöllum
DESCRIPTION:     Þann 30. september 2021 stóð Græna orkan í samstarfi við Isavia og Verkís fyrir vefviðburði undir yfirskriftinni orkuskipti á flugvöllum. Framsögumenn fundarins voru eftirfarandi:    • Olav Mosvold Larsen, framkvæmdastjóri Avinor Carbon Reduction Programme    • Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni Isavia    • Þórður Þorsteinsson, rafmagnstæknifræðingur Verkís    Fundarstjóri var Gunnar Valur Sveinsson, stjórnarmaður Grænu Orkunnar og verkefnastjóri hjá Samtökmu ferðaþjónustunnar.    Hér má sjá upptöku af fundinum.     https://www.youtube.com/watch?v=ieSLq6g2MlE  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2200
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20210825T085857
LAST-MODIFIED:20210825T085858
UID:2195@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Beint streymi Samorku: Tölum saman um græna framtíð
DESCRIPTION: Samorka býður til opins streymisfundar miðvikudaginn 25. ágúst kl. 10. Þar mun Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku fjalla um helstu tækifæri og viðfangsefni sem blasa við varðandi grænar lausnir og alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagmálum í aðdraganda alþingiskosninga.     https://vimeo.com/591510561  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2195
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20210607T124630
LAST-MODIFIED:20210609T143853
UID:2173@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Vefviðburður 9. júní: Rafvæðing hafna á Íslandi
DESCRIPTION:     Græna orkan, Verkís og Orkustofnun stóðu fyrir vefviðburði á Zoom í hádeginu 9. júní. Þar fjallaði Kjartan Jónsson, rafmagns- og rekstrariðnfræðingur hjá Verkís um verkefni sem nýlega var unnið fyrir Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið um stöðu rafvæðingar hafna á Íslandi.    Tilgangur verkefnisins var meðal annars að skapa góða yfirsýn yfir núverandi stöðu og framtíðarhorfur varðandi rafvæðingu hafna, með það að markmiði að styðja við þróun á notkun umhverfisvænni orkugjafa fyrir skip sem liggja við bryggju. Skýrslan hefur verið birt á vefsíðu Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.    Fundarstjóri var Anna Margrét Kornelíusdóttir, verkefnastjóri hjá Grænu orkunni.    Sjá nánar á facebook síðu viðburðar en fylgjast má með í beinni útsendingu hér.    Glærur Kjartans má nálgast hér:    Raefvaeding-hafna-a-Islandi-ID-214227Download 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2173
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20210512T104541
LAST-MODIFIED:20210512T104542
UID:2158@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Viðburður 3. júní: orkuskipti á framkvæmdastöðum
DESCRIPTION:     Grænni byggð, Landsvirkjun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Græna orkan bjóða til spennandi málstofu þar sem rætt verður um orkuskipti á framkvæmdastað. Aðalfyrirlesari verður Pedro Gonzales frá Skanska, sem mun segja frá reynslu hins byggingafyrirtækisins af kolefnislausum framkvæmdastöðum.    Einnig taka til máls:- Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Grænni byggð- Björn Halldórsson og Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, Landsvirkjun- Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, Byggjum grænni framtíð- Anna Margrét Kornelíusdóttir, Græna orkan- Ragnar K. Ásmundsson, Orkusjóður    Fundinum verður streymt á netinu 3. júní kl. 9:00-10:30.    Skráning á viðburðinn fer fram hér: https://forms.gle/tCgemRBUizEkQ3eY6 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2158
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20210505T093704
LAST-MODIFIED:20210505T093706
UID:2155@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Tækifæri og áskoranir í loftlagsvænni uppbyggingu ferðaþjónustu
DESCRIPTION: Loftslagsráð býður til samtals og sóknar í loftslagsmálum.Markmið viðburðarins sem fer fram í dag, 5. maí, er meðal annars að varpa ljósi á sóknarfæri sem felast í krefjandi markmiðssetningu og loftslagsvænum fjárfestingum, og að setja umræðu um 2030 markmið í loftslagsmálum í samhengi við áfanga í átt að kolefnishlutleysi.Þátttakendur úr atvinnulífinu verða:Jón Gestur Ólafsson, gæða,- umhverfis-og öryggisstjóri Bílaleiga Akureyrar / EuropcarRannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Elding Whale Watching ReykjavikAuður H. Ingólfsdóttir, ráðgjafi og formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarður - Vatnajökull National ParkJón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslensk NýOrkaSamtalinu verður streymt á vefnum miðvikudaginn 5. maí kl. 13-14.30. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2155
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20210415T140028
LAST-MODIFIED:20210504T113407
UID:2148@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur Grænu orkunnar 2021
DESCRIPTION:     Aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, fír fram þriðjudaginn 4. maí 2021 9:00-10:00 og var rafrænn að þessu sinni.    Dagskrá aðalfundar var sem hér segir og samkvæmt samþykktum:    Kosning fundarstjóra og fundarritaraSkýrsla stjórnar lögð framReikningar lagðir fram til samþykktarBreytingar á samþykktumÁkvörðun árgjaldsKosning stjórnarÖnnur mál    Skýrslu stjórnar má nálgast hér:     Skýrsla stjórnar Grænu orkunnar 2020-2021Download    Allir félagsmenn mega sitja aðalfund og einungis er eitt atkvæði á hvert aðildarfyrirtæki eða -stofnun. Félagar teljast þeir sem greiða félagsgjald og þeir einir hafa atkvæðarétt á aðalfundi. Félagsgjald er kr. 50.000 fyrir fyrirtæki með fleiri 25 starfsmenn en kr. 12.500 fyrir minni fyrirtæki og einstaklinga.    Tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði til afgreiðslu á fundinum, þurfa að berast félaginu a.m.k. 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund, þ.e. 27. apríl 2021, til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is.    Tímabil tveggja stjórnarmanna sem sitja fyrir hönd atvinnulífsins lýkur á aðalfundinum. Þeir hyggjast bjóða sig fram til áframhaldandi stjórnarsetu en framboð til stjórnar eru velkomin og er stjórnarseta til tveggja ára.  Þeir félagar er hyggjast bjóða sig fram í stjórn skulu tilkynna framboð til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is fyrir 27. apríl 2021. 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2148
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20210316T084103
LAST-MODIFIED:20210316T084104
UID:2118@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Viðburður um öryggi örflæðis 23. mars 2021
DESCRIPTION: Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og umferðaröryggisráð standa fyrir opnum veffundi þriðjudaginn 23. mars kl. 8:30-9:45 um fjölbreytta ferðamáta og öryggi léttra bifhjóla, rafhlaupahjóla og annarra smáfarartækja í umferðinni. Dagskrá og skráning hér.     
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2118
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20210202T110335
LAST-MODIFIED:20210317T122323
UID:2103@https://graenaorkan.is
SUMMARY:5 febrúar: Kynningarfundur verkefnis um hleðsluinnviði fyrir rafbíla
DESCRIPTION:Í hádeginu föstudaginn 5. febrúar munu Íslensk NýOrka, EFLA verkfræðistofa, Samtök ferðaþjónustunnar og Orka náttúrunnar kynna niðurstöður verkefnis síns um hleðsluinnviði fyrir rafbíla á veffundi á vegum Grænu orkunnar og Orkustofnunar. Verkefnið ber yfirskriftina Þarfa- og kostnaðargreining vegna innleiðingar rafbíla í bílaleigubílaflota Íslands og er unnið fyrir Umhverfis- og auðlindaráðuneytið.  Dagskráin verður á þessa leið: 12:05 Bakgrunnur verkefnis Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku 12:10 Þarfa- og kostnaðargreining fyrir hleðsluinnviði á ferðamannastöðum og við Keflavíkurflugvöll Haukur Hilmarsson, hagfræðingur, EFLU verkfræðistofu 12:40 Heildarniðurstöður verkefnis Anna Margrét Kornelíusdóttir, verkefnastjóri, Íslenskri NýOrku 12:55 Umræður og spurningar 13:15 Fundi slitið Nánar um viðburðinn á Facebook.  Hér má fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á Zoom.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2103
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20201222T084749
LAST-MODIFIED:20201222T085318
UID:2094@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Jólakveðja frá Grænu orkunni
DESCRIPTION:
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2094
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20201202T091839
LAST-MODIFIED:20201202T091839
UID:2085@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Vefviðburður Orkuklasans um vetni 3. desember 2020
DESCRIPTION:Orkuklasinn stendur fyrir vefviðburði um reynslu Þjóðverja af vetnisnýtingu í samstarfi við Sendiráð Íslands í Berlín. Viðburðurinn fer fram á ensku þann 3. desember næstkomandi klukkan 9:00-10:15.  Dagkráin verður eftirfarandi:        Maria Erla Marelsdottir, Icelandic Embassy, Berlin    David Bothe, Frontier Economics - “Hydrogen and E-fuels – key ingredient for a successful energy transition in Germany“    Sabine Augustin, OGE – “Hydrogen, infrastructure and technology”    Prof. Dr. Jürgen Peterseim, PWC - “Hydrogen for industrial application - demand and examples”      Skráning fer fram hér.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2085
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20201008T143233
LAST-MODIFIED:20201022T154252
UID:2067@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Græna orkan aðalfundur 2020
DESCRIPTION:    Aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, fer fram 22. október 2020 9:00-10:30 í gegnum fjarfundakerfið Zoom.    Dagskrá aðalfundar verður sem hér segir og samkvæmt samþykktum:      Kosning fundarstjóra og fundarritara    Skýrsla stjórnar  lögð fram    Reikningar lagðir fram til samþykktar    Breytingar á samþykktum    Ákvörðun árgjalds    Kosning stjórnar             Óskað er eftir framboðum í stjórn Grænu orkunnar. Frambjóðendur kynna               sig stuttlega (3-4 mínútur á mann).    7.Önnur mál    Að lokinni hefðbundinni dagskrá verður boðið upp á tvo 15-20 mínútna fyrirlestra á meðan á atkvæðagreiðslu stendur.      Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs og Ingibjörg Bryngeirsdóttir, stýrimaður á Herjólfi segja frá rekstri tvinnferjunnar Herjólfs    Haukur Ásberg Hilmarsson, EFLU, Uppbygging rafhleðsluinnviða fyrir raf-bílaleigubíla    Í lok fundarins verða niðurstöður kosninga kynntar og fundi slitið um klukkan 10:30.    Allir félagsmenn mega sitja aðalfund og einungis er eitt atkvæði á hvert aðildarfyrirtæki eða -stofnun. Félagar teljast þeir sem greiða félagsgjald og þeir einir hafa atkvæðarétt á aðalfundi. Samþykkt félagsgjald hækkar nú miðað undanfarin ár og var hækkunin samþykkt á aðalfundi félagsins 2019. Félagsgjald er kr. 50.000 fyrir fyrirtæki með fleiri 25 starfsmenn en kr. 12.500 fyrir minni fyrirtæki og einstaklinga. Reikningar fyrir aðildargjöldum 2020 munu birtast rafrænt í netbanka aðildarfyrirtækja og hafa eindaga 21. október 2020 og ættu að berast félagsmönnum í vikunni.    Tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði til afgreiðslu á fundinum, þurfa að berast félaginu a.m.k. 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund, þ.e. 15. október 2020, til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is.    Stjórn Grænu orkunnar leggur til breytingar á 7. grein samþykkta félagsins. Núverandi orðalag er eftirfarandi:    7.gr. Stjórn félagsins skal skipuð 7 félagsmönnum auk formanns. Fjórir stjórnarmenn skuli koma úr hópi félagsmanna og eru kjörnir til tveggja ára í senn á aðalfundi. Fjórir stjórnarmenn skuli koma frá hinu opinbera. Óska skal eftir því að hvert ráðuneyti skipi einn fulltrúa (umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið). Stjórnarmenn eru skipaðir til tveggja ára í senn, þannig að aldrei gangi nema tveir úr stjórn. Til þess að svo megi verða, skal á þriðja aðalfundi félagsins, árið 2017, kjósa um tvo stjórnarmenn til eins árs og tvo til tveggja ára. Heimilt er að endurkjósa stjórnarmenn en þeir skulu þó ekki sitja lengur en sex ár samfleytt í stjórn. Á aðalfundir skal einnig kjósa 2 varamenn, fyrsta varamann og annan varamann, sem taka skulu sæti kosinna stjórnarmanna sem frá þurfa að hverfa á starfsárinu. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins og verkefnisstjóri fara með málefni félagsins milli aðalfunda. Verkefnastjóri boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.     Breytingartillaga stjórnar á greininni hljóðar svo með breytingu rauðletruðum texta hér.    7.gr. Stjórn félagsins skal skipuð 7 félagsmönnum auk formanns. Fjórir stjórnarmenn skuli koma úr hópi félagsmanna og eru kjörnir til tveggja ára í senn á aðalfundi. Fjórir stjórnarmenn skuli koma frá hinu opinbera. Óska skal eftir því að hvert ráðuneyti skipi einn fulltrúa (umhverfis- og auðlindaráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið). Ráðuneytin tilnefna sína fulltrúa til tveggja ára í senn.  Kjörnir fulltrúar eru skipaðir til tveggja ára í senn, þannig að aldrei gangi nema tveir úr stjórn. Til þess að svo megi verða, skal á þriðja aðalfundi félagsins, árið 2017, kjósa um tvo stjórnarmenn til eins árs og tvo til tveggja ára. Heimilt er að endurkjósa stjórnarmenn en þeir skulu þó ekki sitja lengur en sex ár samfleytt í stjórn. Á aðalfundi skal einnig kjósa 2 varamenn, fyrsta varamann og annan varamann, sem taka skulu sæti kosinna stjórnarmanna sem frá þurfa að hverfa á starfsárinu. Stjórn skiptir með sér verkum, en formaður skal valinn úr hópi kjörinna félagsmanna. Stjórn félagsins og verkefnisstjóri fara með málefni félagsins milli aðalfunda. Verkefnastjóri boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.    Óskað er eftir framboðum í stjórn Grænu orkunnar fyrir hönd atvinnulífsins og er stjórnarseta til tveggja ára. Tvö sæti í stjórn eru laus og tvö sæti varamanna. Varamenn taka sæti aðalmanna þurfi þeir frá að hverfa úr stjórn á starfsárinu.    Þeir félagar er hyggjast bjóða sig fram í stjórn skulu tilkynna framboð til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is fyrir 15. október 2020.    Hlekkur til þátttöku á fundinum og til kosninga verður sendur félögum í tölvupósti þegar nær dregur.    &nbsp;
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2067
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20200908T093818
LAST-MODIFIED:20200908T093929
UID:2052@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Ársfundur Samorku í beinni útsendingu
DESCRIPTION:Bein útsending verður frá stafrænum ársfundi Samorku, Orkuskipti: Hvað þarf til? 8. september 9-13.  Fjallað er um orkuskipti frá ýmsum hliðum og niðurstöður nýrra greininga um orku- og aflþörf fyrir orkuskipti kynntar auk niðurstaðna úr nýrri hleðslurannsókn Samorku.  Útsendingin fer fram á vefsíðu Samorku.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2052
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20200903T114353
LAST-MODIFIED:20200903T114353
UID:2048@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Samræmingarfundur aðila í orkuskiptum
DESCRIPTION:      [caption id="attachment_2049" align="aligncenter" width="584"] Mynd: Kamma Thordarson[/caption]    Nú í vikunni fór fram samræmingarfundur nokkurra aðila sem eiga það sammerkt að vinna að orkuskiptum hér á landi.      Þátttakendur voru Græna orkan, Grænvangur - samstarfsvettvangur um loftslagsmál og grænar lausnir, Íslensk NýOrka, Orkuklasinn, Orkuskiptahópur Samorku og fulltrúar frá  Orkustofnun.        Líflegar umræður sem stýrt var af Manino drógu fram helstu áherslur félaganna í dag og nauðsynleg skref til þess að Ísland geti staðið við alþjóðlegar skuldbindingar sínar í loftslagsmálum og áform um kolefnishlutleysi 2040.        
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2048
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20200820T144341
LAST-MODIFIED:20200902T083635
UID:2040@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Rafhjólamenning vefviðburður 25. ágúst
DESCRIPTION:[caption id="" align="alignnone" width="1029"] Mynd frá Hjólavef Reykjavíkurborgar: http://hjolaborgin.is/markmid/?goto=2#8[/caption]    Græna orkan, Grænni byggð, Hjólafærni, Orkustofnun og Stjórnvísi bjóða til veffyrirlestra undir yfirskriftinni Rafhjólavæðingin í hádeginu þriðjudaginn 25. ágúst. Vegna samkomutakmarkana hefur verið ákveðið að hafa fundinn eingöngu á Zoom. Hlekkur mun verða birtur hér og á Facebook viðburði þegar nær dregur. Dagskráin verður eftirfarandi:    Reynslan hjá Reykjavíkurborg  Kristinn Eysteinsson, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg    Rafhjólareynslan hjá Norðurorku  Erla Björg Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri hjá Norðurorku    Örflæði: Lítill mótor fyrir stuttar ferðir  Jökull Sólberg Auðunsson, stofnandi Planitor    Aðstaða við verslunar- og þjónustukjarna  Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri hjá Reginn fasteignafélagi    Reynsla Landsspítalans  Hulda Steingrímsdóttir, umhverfisstjóri Landspítala    Rafhjól: Þjónn á þeytingi  Sesselja Traustadóttir framkvæmdastýra Hjólafærni    Fundarstjóri verður Anna Margrét Kornelíusdóttir, verkefnastjóri Grænu orkunnar.    Hér má sjá upptöku frá viðburðinum:    https://youtu.be/4X3Ny87FROs
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2040
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20200609T112040
LAST-MODIFIED:20200609T112040
UID:2028@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundi Grænu orkunnar 2020 frestað
DESCRIPTION:Í ljósi aðstæðna og samkomubanns sem var í gildi fyrr í vor, ákvað stjórn Grænu orkunnar að fresta aðalfundi félagsins fram á haustið 2020. Samkvæmt samþykktum skal aðalfundur haldinn fyrir 1. júní ár hvert.    Dagsetning verður auglýst á næstu vikum.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2028
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20200203T084913
LAST-MODIFIED:20200203T084913
UID:2017@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Þriðja árlega Umhverfisráðstefna Gallup
DESCRIPTION:  Þriðja árlega Umhverfisráðstefna Gallup fer fram í Hörpu 19. febrúar næstkomandi. Þar verða kynntar niðurstöður nýrrar könnunar meðal Íslendinga um viðhorf og hegðun í tengslum við umhverfismál og loftslagsbreytingar.  Hér er að finna fróðleik frá fyrri ráðstefnum en skráning hefst fljótlega.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2017
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20200128T120011
LAST-MODIFIED:20200128T120011
UID:2009@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Snemmskráning á TRA2020 opin til 13. febrúar!
DESCRIPTION:Gildistími snemmskráningar á Transport Reseach Arena (TRA2020), stærstu samgönguráðstefnu Evrópu, hefur nú verið framlengdur til 13. febrúar. Ráðstefnan fer fram í Helsinki, dagana 27.-30. apríl næstkomandi og er yfirskrift hennar í ár Rethinking transport – towards clean and inclusive mobility. Á TRA koma saman helstu samgöngusérfræðingar heims og rædd ýmsir vinklar samgangna: öryggismál, loftslagsbreytingar, hlutverk borgara og síðast en ekki síst, nýjasta tækni.  Sjá hér dagskrá og frekari upplýsingar um TRA2020.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=2009
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20191220T104931
LAST-MODIFIED:20191220T104931
UID:1996@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Jólakveðja frá Grænu orkunni
DESCRIPTION:
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1996
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20191125T145446
LAST-MODIFIED:20191125T145446
UID:1983@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Kynningarfundur Loftslagssjóðs 28. nóvember 2019
DESCRIPTION:Kynningarfundur Loftslagssjóðs verður haldinn í Norræna húsinu fimmtudaginn 28. nóvember kl. 12:00-13:00    Hlutverk Loftslagssjóðs er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Á fundinum verða áherslur fyrir fyrstu úthlutun kynntar sem og umsóknarferli.    Dagskrá verður eftirfarandi:  - Ávarp: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra  - Áherslur stjórnar: Hildur Knútsdóttir, formaður stjórnar  - Handbók sjóðsins, umsóknarkerfi og faglegt matsferli: Ása Guðrún Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís    Húsið opnar kl. 11:30 og boðið verður upp á léttan hádegisverð fyrir fundinn. Skráning fer fram hér en einnig verður streymt frá fundinum. Sjá einnig á Facebook síðu viðburðar.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1983
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20191025T094929
LAST-MODIFIED:20191025T094929
UID:1977@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Opinn samráðsfundur Grænu orkunnar 30. október
DESCRIPTION:    Snemma í haust fól samstarfshópur ráðuneyta Grænu orkunni, Samstarfsvettvangi um orkuskipti, að móta tillögur að forgangsröðun verkefna er varða orkuskipti og útfærslu fjármagns fyrir árið 2020.    Græna orkan hefur undanfarnar vikur fundað með haghöfum með það fyrir augum að draga fram hvar mest er þörf á innviða uppbyggingu sem greitt getur fyrir orkuskiptum í samgöngum og samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.    Tillögurnar lúta að innviðalausnum er varða fólksbíla, hópbifreiðar, landflutninga og vinnuvélar og loks hafnir og haftengda starfsemi og verða kynntar í þessari röð á fundinum.    Áður en tillögum er skilað til starfshóps ráðuneyta, vill Græna orkan gefa almenningi og öllum þeim sem áhuga hafa á orkuskiptum tækifæri til að kynna sér efni þeirra á opnum fundi, veita umsögn og endurgjöf. Dagskráin verður eftirfarandi:    09:00 Kynning verkefnis  09:10 Kynning á starfi samstarfshóps ráðuneyta  09:15 Drög að tillögum fólksbílahóps kynnt  09:45 Drög að tillögum hópbifreiðahóps kynnt  10:15 Kaffihlé  10:30 Drög að tillögum hóps um landflutninga og vélar kynnt  11:00 Drög að tillögum um hafnir og skip kynnt  11:30 Almennar umræður og samantekt  12:00 Fundarslit    Samráðsfundurinn 30. október næstkomandi er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1977
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20191023T153354
LAST-MODIFIED:20191024T112321
UID:1966@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Upptaka frá metan viðburði 23. október
DESCRIPTION:Viðburður Grænu orkunnar, Grænni byggðar og Orkustofnunar sem bar yfirskriftina Hvað á að gera við metanið? fór fram í Orkugarði í dag, 23. október. Um 60 gestir tóku þátt og hlýddu á fyrirlestrana fimm. Við viljum koma á framfæri þökkum til fyrirlesara fyrir áhugaverð erindi og fundarstjóra fyrir dygga tímastjórnun og spurningar. Fyrirlesarar voru:    Björn Halldórsson framkvæmdastjóri Sorpu  María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins  Stefán Þór Kristinsson, efnaverkfræðingur hjá EFLU verkfræðistofu  Auður Nanna Baldvinsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Landsvirkjun og stjórnarformaður Grænu orkunnar  Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri Skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg    Fundarstjóri var Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar.    Hér fyrir neðan má nálgast upptöku frá viðburðinum.    [embed]https://youtu.be/6c2vu2FT1W0[/embed]    &nbsp;
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1966
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20191016T102621
LAST-MODIFIED:20191016T102621
UID:1958@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Viðburður 23. október: Hvað á að gera við metanið?
DESCRIPTION:  Græna orkan, Grænni Byggð og Orkustofnun standa fyrir hádegisviðburði sem ber yfirskriftina "Hvað á að gera við metanið?" miðvikudaginn 23. október.    Ræddar verða leiðir til að auka nýtingu metans hér á landi, og hlutverk þess í orkuskiptum, ekki síst í ljósi fyrirhugaðrar aukningar í framleiðslu þess með tilkomu gas- og jarðgerðarstöðvar Sorpu.    Fyrirkomulagið með örlítið öðrum hætti en verið hefur. Húsið opnar klukkan 11:30 með léttum veitingum en formleg dagskrá er 12:00-13:30.    Dagskráin mun verða eftirfarandi:  Björn Halldórsson framkvæmdastjóri Sorpu  María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins  Hafsteinn Helgason, sviðsstjóri Þróunar hjá EFLU verkfræðistofu  Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri Skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg    Fundarstjóri verður Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar.    Fyrirlestrarnir fara fram í Orkugarði, Grensásvegi 9 en þangað ganga strætisvagnar númer 2, 3, 6, 14, 15, og 17 og yfirbyggð hjólageymsla er á bakvið húsalengjuna, við hliðina á Frumherja.  Viðburðurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1958
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20190606T222532
LAST-MODIFIED:20190618T092210
UID:1914@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Útgáfu- og umræðufundur um Vegvísi Hafsins Öndvegisseturs
DESCRIPTION:Græna orkan vekur athygli á opnum fundi Hafsins – Öndvegisseturs á morgun, föstudagin 7. júní kl. 13:30-15:00 í Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík.    Nú er komið að útgáfu Vegvísis um vistvænan sjávarútveg og haftengda starfsemi á Íslandi, sem Hafið – Öndvegissetur hefur unnið að síðustu misserin.    Vegvísinum er ætlað að gefa yfirsýn yfir tiltekna þætti og vonast er til að hann veiti góðan umræðugrundvöll um þau viðfangsefni sem við stöndum frammi fyrir og best verða leyst með samstarfi, þvert á samfélagið.    Vegvísirinn hefur verið gefinn út á prenti og verður honum dreift á fundinum og rafræn útgáfa gerð aðgengileg.    Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta, kynna sér Vegvísi Hafsins og taka þátt í áhugaverðum umræðum um málefnin. Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir en að honum loknum verður upptaka aðgengileg hér.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1914
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20190509T085333
LAST-MODIFIED:20190509T085333
UID:1894@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Transport Research Arena 2020
DESCRIPTION:    Transport Research Arena 2020 (eða TRA2020) er stærsta tækniráðstefna Evrópu um samgöngur. Á næsta ári verður hún haldin í Helsinki undir yfirskriftinni "Transport and mobility (r)evolution for smart, green and integrated society".        Kallað hefur verið eftir erindum og skilafrestur ágripa er 31. maí næstkomandi. Sjá nánar á vefsíðu ráðstefnunnar og hér fyrir neðan á ensku.          Now is the time to submit your work to the TRA2020 in Helsinki!        Transport Research Arena (TRA) is the foremost European transport event that covers all transport modes and all aspects of mobility. The next edition of this biennial event will be held in Helsinki on the 27-30 of April in 2020. Under the conference theme “Rethinking transport – towards clean and inclusive mobility” TRA2020 will focus on rethinking how with means of research and innovation, we can offer solutions what citizens are calling for.    TRA offers a great venue for researchers, policy makers and industry representatives to get together and contribute to the discussion on how research and innovation can  and how it should re-shape the mobility system. The conference provides a unique opportunity to hear about mobility trends in different parts of Europe, learn from achievements in industry as well as share best practices of policies and deployments.  Call for Submission deadline extended until May 31  Based on a number of extension requests, the deadline for both journal and conference track papers are extended until May 31. The scientific and technical sessions will comprise of research papers, the best of which will be published in peer-reviewed journals. All accepted papers will be included in the conference proceedings.    You are welcome to submit a short conference paper or a full-length journal paper. A short conference paper consists of 2 – 4 pages, and as approved, entitles you to a reduced admission fee at the TRA2020. Please see our web page for the Call for submissions for full information and submit your work through the online submission system Ex Ordo.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1894
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20190415T135004
LAST-MODIFIED:20190415T142255
UID:1888@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur Grænu orkunnar
DESCRIPTION:    Aðalfundur Grænu orkunnar fór fram miðvikudaginn 10. apríl síðastliðinn. Á fundinum voru tveir nýir stjórnarmenn kjörnir sem munu sitja í tvö ár fyrir hönd atvinnulífsins en það voru þau Gunnar Valur Sveinsson, Samtökum ferðaþjónustunnar, og María Jóna Magnúsdóttir, Bílgreinasambandinu. Græna orkan býður þau velkomin til starfa og þakkar jafnframt Gunnari Páli Stefánssyni hjá Mannviti fyrir ánægjulegt samstarf undanfarin tvö ár.    Að loknum aðalfundinum hélt Erik Lorentzen, Norska rafbílasambandinu fyrirlestur um þróun rafbílavæðingar í Noregi og næstu skref hennar til framtíðar. Um 70 manns mættu á fyrirlesturinn en einnig var streymt frá fundinum í beinni útsendingu á Facebook. Hér má finna upptöku af fyrirlestrinum og hér má nálgast glærur Eriks á pdf sniðmáti.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1888
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20190329T153548
LAST-MODIFIED:20190329T160016
UID:1883@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Fyrirlestur norska rafbílasambandsins 10. apríl
DESCRIPTION:    Árangur Norðmanna í rafbílavæðingu er alþekktur um allan heim. Á einungis 7 árum hefur fjöldi vistvænna bifreiða þar í landi aukist úr innan við 10.000 í tæplega 250.000 en fjöldi hreinna rafbíla nam 162.500 í lok árs 2018. Árangur þennan má einkum þakka víðtækum ívilnunum til langs tíma sem kaupendur þessara bíla hafa notið og einhugar stjórnvalda um að liðka fyrir upptöku vistvænna bíla.    Þann 10. apríl næstkomandi mun Erik Lorentzen frá norska rafbílasambandinu (Norsk elbilforening) halda fyrirlestur um rafbílavæðingu Noregs og næstu skref til framtíðar. Viðburðurinn fer fram í sal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1. Húsið opnar klukkan 11:30 en formleg dagskrá fer fram milli 12 og 13.  Aðgangur er ókeypis og fundurinn er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir.    Sjá nánar í viðburði á Facebook.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1883
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20190318T085250
LAST-MODIFIED:20190318T085250
UID:1880@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Dagur verkfræðinnar 22. mars
DESCRIPTION:    Verkfræðingafélag Íslands stendur fyrir degi verkfræðinnar næstkomandi föstudag, 22. mars, á Hilton Reykjavík Nordica. Í boði eru fjölmargir fyrirlestrar tengdir orkuskiptum og vistvænni orku í afar metnaðarfullri og áhugaverðri dagskrá. Sjá nánari upplýsingar hér í hlekk.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1880
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20190311T112023
LAST-MODIFIED:20190311T112047
UID:1875@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Hádegisfyrirlestur 15. mars um lífeldsneyti
DESCRIPTION:    Föstudaginn 15. mars verður áttundi viðburður í fyrirlestraröð Grænu orkunnar og Orkustofnunar. Að þessu sinni munum við fjalla um innlenda framleiðslu lífeldsneytis.    Fyrirkomulagið með hefðbundnum hætti, húsið opnar klukkan 11:30 með léttum veitingum en formleg dagskrá er 12:00-13:00.    Hjalti Þór Vignisson, framkvæmdastjóri sölu og þróunar hjá Skinney-Þinganesi og Sandra Rán Ásgrímsdóttir hjá Mannviti munu fjalla um verkefni sem snýr að repjuræktun og framleiðslu á umhverfisvænni skipaolíu og er unnið í samstarfi við Samgöngustofu. Þess má geta að í október síðastliðnum hlaut Skinney-Þinganes umhverfisverðlaun atvinnulífsins fyrir framtak ársins á sviði umhverfismála. Fleiri erindi um lífeldsneyti verða staðfest á næstu dögum.    Fyrirlestrarnir fara fram í Orkugarði, Grensásvegi 9 en þangað ganga strætisvagnar númer 2, 3, 6, 14, 15, og 17 og yfirbyggð hjólageymsla er á bakvið húsalengjuna, við hliðina á Frumherja.  Viðburðurinn er öllum opinn, aðgangur ókeypis og verður honum streymt.    Sjá nánar um viðburðinn hér á Facebook.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1875
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20190215T150242
LAST-MODIFIED:20190215T155502
UID:1862@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Rafbílasýning hjá Hyundai 16. febrúar
DESCRIPTION:    Hyundai í Kauptúni verður með rafbílasýningu á morgun, laugardag. Þar verður hægt að skoða og reynsluaka hinum ýmsu bílum. Sjá nánar í frétt frá Hyundai.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1862
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:20190213
DTEND:20190214
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20190205T091729
LAST-MODIFIED:20190213T133945
UID:1844@https://graenaorkan.is
SUMMARY:13. febrúar: Hádegisfyrirlestur um vistvænar almenningssamgöngur
DESCRIPTION:[caption id="attachment_1845" align="aligncenter" width="300"] Rafmagnsstrætó til sýnis við Hörpu í maí 2018. Mynd: AMK.[/caption]    Nú líður að fyrsta hádegisfyrirlestri ársins 2019 um orkuskipti sem Orkustofnun og Græna orkan standa í sameiningu að. Að þessu sinni verða vistvænar almenningssamgöngur til umfjöllunar. Tveir fyrirlesarar munu halda stutt erindi:    Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs  Lilja Guðríður Karlsdóttir, verkefnastjóri Borgarlínu    Sem fyrr, verður fyrirkomulagið með þeim hætti að húsið opnar klukkan 11:30 með léttum veitingum en formleg dagskrá er 12:00-13:00. Fyrirlestrarnir fara fram í Orkugarði, Grensásvegi 9 en þangað ganga strætisvagnar númer 2, 3, 6, 14, 15, og 17 og yfirbyggð hjólageymsla er á bakvið húsalengjuna, við hliðina á Frumherja.  Viðburðurinn er öllum opinn, aðgangur ókeypis og verður honum streymt. Nánari upplýsingar um fundinn má finna á Facebook viðburði.    Uppfært 13. febrúar: glærur Jóhannesar og Lilja eru nú aðgengilegar hér fyrir ofan.
LOCATION:Grensásvegur 9, Reykjavík, Iceland, 108
URL:https://graenaorkan.is/?p=1844
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20190116T090302
LAST-MODIFIED:20190116T090302
UID:1829@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Viðburðir framundan í janúar
DESCRIPTION:    Hér er stutt yfirlit yfir viðburði tengdum umhverfismálum og orkuskiptum sem fara fram á næstu dögum.    17. janúar 8:30-12:15 Harpa Janúarráðstefna Festu    18. janúar 8:30-11:15 Harpa Umhverfisráðstefna Gallup    23. janúar 8-10 Grand Hótel Verkfræðingafélag Íslands stendur fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni Sjálfbærnimarkmið SÞ og samfélagsábyrgð tæknistétta    24. janúar 13-15 Grensásvegur 9 Ísorka stendur fyrir fundi sem ber heitið Snjallvæðing rafbílahleðslu á Íslandi    24. janúar 13-15 Skúlagötu 4 Íslensk NýOrka og Hafið kynna Aðgerðaáætlun um orkuskipti í íslenskum höfnum
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1829
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20181221T090752
LAST-MODIFIED:20181219T105930
UID:1808@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Gleðileg græn jól!
DESCRIPTION:Stjórn Grænu orkunnar óskar aðildarfélögum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar!  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1808
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20181121T142638
LAST-MODIFIED:20181121T142719
UID:1783@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Hádegisviðburður GO og OS hlýtur viðurkenninguna "Viðburður í jafnvægi" frá KÍO
DESCRIPTION:    Viðburður Grænu orkunnar og Orkustofnunar hefur hlotið viðurkenningu fyrir að vera viðburður í jafnvægi en um er að ræða viðurkenningu stjórnar Kvenna í orkumálum. Viðburðurinn sem hlýtur viðurkenninguna verður haldinn næstkomandi fimmtudag 22. nóvember í Orkugarði, Grensásvegi 9 kl. 11.30-13.00 og ber yfirskriftina Orkuskipti: þáttur fluggeirans og framtíðarhorfur.    Stjórn félagsins Konur í orkumálum hrinti nú í haust af stað verkefninu „Viðburður í jafnvægi“. Félagið hefur skoðað skiptingu kynja meðal fyrirlesara og fundarstjóra á viðburði GO og OS 22. nóvember og gleðst yfir því að kynjajafnrétti sé í hávegum haft. Félagið vill því lýsa því yfir að þessi viðburður flokkast sem „Viðburður í jafnvægi“ og hlýtur þar með Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum.    Á vef félagsins Konur í orkumálum er hægt að lesa nánar um jafnréttisstimpilinn.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1783
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20181107T152221
LAST-MODIFIED:20181127T125016
UID:1778@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Hádegisfyrirlestur 22. nóvember um orkuskipti og fluggeirann
DESCRIPTION:    Nú er komið að 6. viðburði í fyrirlestraröð Orkustofnunar og Grænu orkunnar um orkuskipti!    Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að húsið opnar klukkan 11:30 með léttum veitingum en formleg dagskrá er 12:00-13:00. Efni fundarins að þessu sinni og yfirskrift er Orkuskipti: þáttur fluggeirans og framtíðarhorfur. Þrír sérfræðingar munu halda stutt erindi:    Valur Klemensson, Isavia  Anna Margrét Björnsdóttir Samgöngustofa  Þórður Þorsteinsson Verkís    Fundarstjóri verður Auður Nanna Baldvinsdóttir, stjórnarformaður Grænu orkunnar.    Fyrirlestrarnir fara fram í Orkugarði, Grensásvegi 9 en þangað ganga strætisvagnar númer 2, 3, 6, 14, 15, og 17 og yfirbyggð hjólageymsla er á bakvið húsalengjuna, við hliðina á Frumherja. Viðburðurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.    Sjá hér viðburð á Facebook. Þar má einnig horfa á upptöku frá fundinum.    Í þessari frétt á mbl.is var fjallað um fundinn og rætt við fyrirlesara að honum loknum um orkuskipti í flugsamgöngum.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1778
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20181023T083643
LAST-MODIFIED:20181023T083802
UID:1768@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Zero Emission Bus Conference Köl, 27.-8. nóvember
DESCRIPTION:Græna orkan vill vekja athygli á Zero Emission Bus Conference, ráðstefnu um  hreinorkustrætisvagna, sem haldin verður í Köln í Þýskalandi dagana 27.-28. nóvember næstkomandi. Þar verður boðið upp á gríðarlega metnaðarfulla og áhugaverða dagskrá sem undirstrikar vegferð okkar í átt að kolefnishlutleysi. Enn er opið fyrir skráningu!    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1768
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20181004T082352
LAST-MODIFIED:20181004T082352
UID:1764@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Nú eru síðustu forvöð að skrá sig!
DESCRIPTION:Græna orkan vill vekja athygli á tveimur ráðstefnum um vistvæna orku sem fara fram í næstu viku, hvor á eftir annarri, dagana 9.-11. október, á Grand Hótel Reykjavík.    Nordic Hydrogen and Fuel Cell Conference  https://www.altenergy.info/#welcome-hfcnordic  fjallar um notkun vetnis í samgöngum 9.-10. október.      Making Marine Applications Greener, ráðstefna um notkun vistvænna orkugjafa í haftengdri starfsemi, tekur svo við frá hádegi til hádegis 10.-11. október.  https://www.altenergy.info/#welcome-mmag  Sjá nánar um ráðstefnurnar á vefsíðu.      
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1764
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180924T101226
LAST-MODIFIED:20180924T101318
UID:1760@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Nel opnar framleiðslumiðstöð fyrir vetnisstöðvar
DESCRIPTION:Nel ASA opnaði í liðinni viku framleiðslumiðstöð fyrir vetnisstöðvar í Herning í Danmörku. Markar þetta þáttaskil í rekstri fyrirtækisins, og e.t.v. í vetnissögunni, en framleiðslugeta verksmiðjunnar er áætluð um 300 fullbúnar vetnisstöðvar á ári.    Sjá nánar í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1760
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180919T133507
LAST-MODIFIED:20180919T133507
UID:1758@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Viðburðir á næstunni
DESCRIPTION:    Við hjá Grænu orkunni viljum vekja athygli á eftirfarandi viðburðum sem tengjast orkuskiptum og eru á döfinni næstu daga:    Fagfundur: Rafbílavæðingin - erum við tilbúin? Fagfundur á vegum AKÍS, Orku náttúrunnar og ERally Iceland 9-11 fimmtudaginn 20. september að Engjavegi 9.  Sjálfbærar fjárfestingar. Hver er ávinningurinn? Morgunverðarfundur SFF og Mannvits á Grand Hótel um sjálfbærar fjárfestingar 8:30-10 fimmtudaginn 20. september.  Hverjar eru áskoranir Íslands í orkumálum? Kynningarfundur Samorku og Orkustofnunar 8:30-10 föstudaginn 21. september í Húsi atvinnulífsins.    Hjólum til framtíðar 2018 - Veljum fjölbreytta ferðamáta. Ráðstefna í Félagsheimili Seltjarnarness 10-16 föstudaginn 21. september.    &nbsp;
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1758
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180914T095150
LAST-MODIFIED:20180912T095424
UID:1753@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Snemmskráningu á HFC Nordic lýkur 15. september
DESCRIPTION:  Síðasti dagur snemmskráningar á HFC Nordic, Norrænu vetnisráðstefnuna er 15. september en eftir það hækkar þátttökugjald um 6000 krónur. Ert þú búin(n) að tryggja þér sæti?      Á dagskrá verða fyrirlestrar frá helstu vetnissérfræðingum Evrópu, sem vinna að orkuskiptum, hver á sinn hátt. Þeirra á meðal eru fulltrúar frá Element Energy, PowerCell, Scania, Solaris Bus og ThinkStep ásamt fjölda annarra.  Skráning fer fram á vefsíðu ráðstefnunnar hér.      [caption id="attachment_1750" align="aligncenter" width="289"] Nordic Hydrogen and Fuel Cells Conference verður haldin í Reykjavík 9.-10 október 2018[/caption]      
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1753
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180912T100113
LAST-MODIFIED:20180912T100113
UID:1755@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Hádegisfyrirlestur 13. september um skattlagningu ökutækja og eldsneytis
DESCRIPTION:Starfshópur sem unnið hefur að endurskoðun skattlagningar ökutækja og eldsneytis skilaðu nýverið skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra. Hópurinn var skipaður í febrúar 2016 og var falið að rannsaka núverandi fyrirkomulag og framkvæmd skattlagningar ökutækja og eldsneytis, leggja til breytingar á gildandi lögum og gera tillögu að framtíðarstefnu stjórnvalda í þessum efnum. Skýrsla starfshópsins var gerð opinber 20. ágúst síðastliðinn og hana má finna hér.    Benedikt S. Benediktsson, formaður starfshópsins, mun á hádegisfyrirlestri Grænu orkunnar og Orkustofnunar 13. september gera grein fyrir megintillögum starfshópsins.    Fyrirlesturinn fer fram í Orkugarði, Grensásvegi 9 en þangað ganga strætisvagnar númer 2, 3, 6, 14, 15, og 17 og yfirbyggð hjólageymsla er á bakvið húsalengjuna. Húsið opnar klukkan 11:30 með léttum veitingum en erindi Benedikts mun hefjast klukkan 12:00 og stendur yfir í um hálftíma. Að því loknu mun gestum gefast tækifæri til að bera upp spurningar. Gert er ráð fyrir að formlegri dagskrá ljúki klukkan 13:00.    Fundarstjóri verður Auður Nanna Baldvinsdóttir, stjórnarformaður Grænu orkunnar. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1755
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180910T101305
LAST-MODIFIED:20180910T103140
UID:1749@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Síðustu forvöð skráningar með afslætti á HFC Nordic
DESCRIPTION:Nú eru síðustu forvöð að skrá sig með svokölluðum early bird afslætti á Norrænu vetnisráðstefnuna HFC Nordic sem haldin verður á Grand Hótel Reykjavík dagana 9.-10. október næstkomandi. Skráningargjald hækkar eftir 15. september úr 18.000 í 24.000 krónur.    Dagskráin hefst á heimsókn í Hellisheiðarvirkjun þar sem skoðaður verður rafgreinir Orku náttúrunnar en hann framleiðir vetni fyrir vetnisstöðvar Orkunnar sem opnaðar voru í júní síðastliðnum. Ráðstefnan sjálf er frá hádegi til hádegis og býður meðal annars upp á fyrirlestra fulltrúa Hyundai, Nel Hydrogen, PowerCell, Scania, Thinkstep og Toyota svo fáeinir séu nefndir. 6.000 króna afsláttur af ráðstefnugjöldum er í boði fyrir þá sem ganga frá skráningu fyrir 15. september. Skráning fer fram á vefsíðu ráðstefnunnar hér. Upplýsingar veitir Anna Margrét Kornelíusdóttir í tölvupósti í netfangið amk@newenergy.is og í síma 863-6506.    [caption id="attachment_1750" align="aligncenter" width="313"] Nordic Hydrogen and Fuel Cells Conference verður haldin í Reykjavík 9.-10 október 2018[/caption]
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1749
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180906T143718
LAST-MODIFIED:20180906T143759
UID:1744@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Alþjóðlegt meistaramót rafbíla haldið í september
DESCRIPTION:Akstursíþróttasamband Íslands (AKÍS) gekk í vor frá samningum við Alþjóða aksturssambandið (FIA) þess efnis að ein umferð í alþjóðlegu meistaramóti rafbíla FIA í nákvæmnisakstri, oft kallað eRally (FIA Electric and New Energy Championship), verði haldið á Íslandi 21.-22. september næstkomandi og nú fer að líða að keppni! Samhliða keppninni stendur til að halda ráðstefnu um hvert stefnir í orkuskiptum í samgöngum hérlendis, hver eru hagræn áhrif þeirra skipta á breiðum grunni, hver eru umhverfisáhrifin bæði jákvæð og neikvæð.    Sjá nánar á síðu AKÍS og Erally.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1744
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180817T092126
LAST-MODIFIED:20180817T092126
UID:1731@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Óskað eftir tilnefningum til tvennra umhverfisverðlauna
DESCRIPTION:Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefningarfrestur er til 24. ágúst næstkomandi.    Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1731
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180620T154431
LAST-MODIFIED:20180620T154431
UID:1715@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Making Marine Applications Greener 2018
DESCRIPTION:Græna orkan vekur athygli á ráðstefnunni Making Marine Applications Greener sem haldin verður á Grand Hótel Reykjavík dagana 10 og 11. október næstkomandi. Dagskráin skartar fjölda áhugverðra fyrirlestra, meðal annars frá fulltrúum MAN, Navis, NOx Fund í Noregi, PSW, Wärtsila og Waterfront Shipping auk margra annarra.    Skráning er hafin og frekari upplýsingar má finna hér.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1715
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180608T110728
LAST-MODIFIED:20180608T110824
UID:1708@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Vetnisráðstefnan HFC Nordic í Reykjavík í október!
DESCRIPTION:Norræna vetnisráðstefnan Nordic Hydrogen and Fuel Cell Conference verður að þessu sinni haldin í Reykjavík, nánar til tekið á Grand Hótel Reykjavík, dagana 9.-10. október næstkomandi.    Íslensk NýOrka, Hafið og Græna orkan koma að skipulagningu ráðstefnunnar hér á landi en það er Scandinavian Hydrogen Highway Partnership, samstarfsvettvangur norrænna fyrirtækja, samtaka og stofnana sem vinna að vetnistengdum málefnum sem stendur fyrir henni annað hvert ár, til skiptis á Norðurlöndunum fimm.    Sjá nánar hér: https://www.altenergy.info/#welcome-hfcnordic 
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1708
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180607T104916
LAST-MODIFIED:20180607T104916
UID:1704@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Óskað eftir tilnefningum til tvennra umhverfisverðlauna
DESCRIPTION:              Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kallar eftir tilnefningum til Fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti. Bæði verða verðlaunin afhent á Degi íslenskrar náttúru, 16. september.                    Tilnefningar ásamt rökstuðningi skal skila til ráðuneytisins fyrir 24. ágúst næstkomandi. Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.        
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1704
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180530T142416
LAST-MODIFIED:20180531T131351
UID:1689@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Hádegisfyrirlestur: Vetni í samgöngum á Íslandi
DESCRIPTION:Fyrirlestur um vetni í samgöngum á landi var haldinn í dag, 30. maí og var þetta fjórða erindi ársins í fyrirlestraröð Orkustofnunar og Grænu orkunnar um orkuskipti.  Í þetta skiptið var umfjöllunarefnið vetni sem orkuberi í samgöngum. Margir muna eftir vetnisstöðinni sem starfrækt var við Grjótháls 2003-2012 en nú í júní mun Orkan opna þar nýja og öflugri vetnisstöð og aðra við Fitjar í Reykjanesbæ.  Dagskráin var þessi:    Ingunn Agnes Kro, framkvæmdastjóri Íslenska vetnisfélaginsins:  Þáttur Orkunnar í orkuskiptunum  Heiðar J. Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi: Hyundai og vetnisbílar  Hörður Bjarnason, tæknifulltrúi Toyota á Íslandi    Vel á fimmta tug gesta hlýddu á fyrirlestrana og báru upp fjölmargar spurningar til fyrirlesara. Glærur verða birtar hér von bráðar.     
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1689
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180525T084217
LAST-MODIFIED:20180525T084233
UID:1685@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Rafbíladagur IÐUNNAR laugardaginn 26. maí
DESCRIPTION:IÐAN fræðslusetur stendur fyrir opnum rafbíladegi laugardaginn 26.maí kl 10-16 í Vatnagörðum 20. Boðið verður upp á fróðlega fyrirlestra um rafbíla, hleðslustöðvar, nýsköpun og umhverfismál. Allir velkomnir!
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1685
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180504T132305
LAST-MODIFIED:20180504T132305
UID:1675@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Ný stjórn Grænu orkunnar 2018-9
DESCRIPTION:Nýir stjórnarmenn Grænu orkunnar, sem kosnir voru á aðalfundi félagsins 10. apríl síðastliðinn, tóku til starfa í dag. Það eru þau Auður Nanna Baldvinsdóttir, Landsvirkjun, sem jafnframt verður formaður stjórnar, Gunnar Valur Sveinsson, Samtökum ferðaþjónustunnar og Sigurður Ástgeirsson, Ísorku. Fyrir sitja Ásta Þorleifsdóttir, Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Benedikt S. Benediktsson, Fjármála- og efnahagsráðuneyti, Erla Sigríður Gestsdóttir, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Helga Barðadóttir, Umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Gunnar Páll Stefánsson, Mannviti.    [caption id="attachment_1676" align="aligncenter" width="584"] Stjórn Grænu orkunnar 2018-9 ásamt verkefnisstjórn. Á myndina vantar Ástu Þorleifsdóttur, Gunnar Pál Stefánsson og Helgu Barðadóttur.[/caption]
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1675
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180416T154829
LAST-MODIFIED:20180417T125124
UID:1657@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Málstofa og aðalfundur Grænu orkunnar 10. apríl
DESCRIPTION:Í liðinni viku stóð Græna orkan að málstofu í samvinnu við Hafið – Öndvegissetur um sjálfbæra nýtingu og verndun hafsins. Hún var vel sótt og í lok framsöguerinda spunnust líflegar umræður og fyrirlesarar svöruðu fjölmörgum spurningum gesta af einurð og samviskusemi. Fundinum var streymt á þessari vefslóð og sjá má afrit af glærum fyrirlesara á síðu Grænu orkunnar hér.    Í beinu framhaldi af málstofunni var aðalfundur Grænu orkunnar – Samstarfsvettvangs um orkuskipti haldinn. Hér má lesa skýrslu stjórnar og skoða ársreikning félagsins. Á fundinum voru kosin í aðalstjórn    Auður Nanna Baldvinsdóttir, Landsvirkjun, til 2 ára    Gunnar Valur Sveinsson, Samtökum ferðaþjónustunnar, til 1 árs    Sigurður Ástgeirsson, Ísorku, til 2 ára    Einnig voru Sigríður Ragna Sverrisdóttir, Hafinu og Skúli K. Skúlason, Bílgreinasambandinu sjálfkjörin í varastjórn. Við hjá Grænu orkunni þökkum stjórn síðastliðins árs fyrir farsælt samstarf og hlökkum til samvinnu með nýrri stjórn.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1657
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180416T144451
LAST-MODIFIED:20180416T144451
UID:1653@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Alþjóðleg vetnisráðstefna í Þrándheimi 14.-15. maí
DESCRIPTION:          This 2-day International Hydrogen and Fuel Cell conference to be held in Trondheim,  Norway will focus on discussions around the establishment and support of hydrogen energy supply chains.      During the conference we will highlight experiences, opportunities, threats and bottlenecks in the area of Hydrogen and Fuel Cell Technologies over a series of invited talks and scientific presentations.    Confirmed speakers:  - Dr Bart Biebuyck - FCH2 JU, European Union, Brussels, Belgium    - Dr Dimitrios Papageorgopoulos - US Department of Energy, USA  - Shanna D. Knights - Ballard Power Systems, Canada    - Prof. Henry Liu - Foshan University/Guangdong SinoSynergy Hydrogen Power Technologies Co. Ltd, China    - Prof. Gregory Jerkiewicz - Queen´s University, Canada  - Dr Kerry-Ann Adamson -  4th Energy Wave, UK  - Prof. Vladimir Molkov - HySAFER, University of Ulster, UK    Other speakers:  - Everett B. Anderson, Proton OnSite, USA  - Dr Dmitri Bessarabov, HySA Infrastructure/NWU, South Africa  - Dr David Hodgson, PV3 Technologies, UK  - Dr Hans Aage Hjuler, DPS, Denmark  - Dr Adamo Screnci, Thyssenkrupp, Germany  - Prof. Jon Pharoah, Queen's University, Canada  - Ole Svendgård, Fornybarklyngen (Renewable Energy Cluster), Norway  - Dr Jon Eriksen, Hystorsys, Norway  - Thomas Bjørdal, NVES (G-PaTRA), Norway  - Dr Øystein Ulleberg, IFE, Norway  - Dr Kristian M. Lien, NTNU, Norway  - Bernhard Kvaal, TrønderEnergi, Norway  - Roger Sæther, ASKO, Norway  - Tomas Tronstad, HYON, Norway  - Hans-Christian Koch-Wintervoll, DNV GL AS, Norway  - Prof Odne S. Burheim, NTNU, Norway    Organising Committee:  - Bruno G. Pollet, NTNU  - Kristian Vik, Norwegian Hydrogen Forum  - Anders Ødegård, SINTEF  - Odne Burheim, NTNU  - Fredrik Haugland, NTNU  - Ask Isben Lindal, NTNU    Scientific Committee:  - Magnus Thomassen, SINTEF  - Federico Zenith, SINTEF  - Frode Seland, NTNU  - Kristian M. Lien, NTNU  - Svein Sunde, NTNU  - Øystein Ulleberg, IFE  - Volodymyr Yartys, IFE/NTNU  - Truls Norby, University of Oslo  - Jens Oluf Jensen, DTU  - Hans Aage Hjuler, DPS  - Björn Wickman, Chalmers    Call for abstracts – deadline extended to April 16th  You are invited to submit an abstract to the conference. The deadline for submission for both presentations and posters is April 16th 2018 (h2fc2018@ntnu.no).    For more information and abstract template: http://www.sintef.no/h2fc-2018  Contact and questions: h2fc2018@ntnu.no    Registration: https://www.deltager.no/h2fc-2018  Location: Norwegian University of Science and Technology (NTNU), Kalvskinnet: Amphitheatre    Address: Sverres Gate 12, Trondheim 7012, view in map      
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1653
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180406T121201
LAST-MODIFIED:20180416T103043
UID:1642@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Málstofa Grænu orkunnar og Hafsins 10. apríl
DESCRIPTION:Hafið - Öndvegissetur um sjálfbæra nýtingu og verndun hafsins og Græna orkan standa í sameiningu að málstofu sem ber yfirskriftina Næstu skref í orkuskiptum í haf- og ferðatengdri starfsemi.    Markmið hennar er að fá fram sjónarmiði lykilatvinnugreina á Íslandi um mögulegar aðgerðir til að hraða orkuskiptum í greinunum. Framsöguerindi verða:    Gunnar Valur Sveinsson - Samtökum ferðaþjónustunnar    Svavar Svavarsson - HB Granda    Páll Erland - Samorku    Jón Bernódusson - Samgöngustofu    Aðgangur að málstofunni er ókeypis og hún er opin öllum. Viðburðinum verður streymt í rauntíma hér. Sjá nánar á Facebook viðburði.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1642
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180402T203907
LAST-MODIFIED:20180402T203932
UID:1639@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Málþing um Árósasamninginn 5. apríl
DESCRIPTION:  Umhverfis- og auðlindaráðuneytið stendur fyrir málþingi í vikunni um Árósasamninginn og reynsluna af honum þau sjö ár sem samningurinn hefur verið í gildi hér á landi.    Árósasamningurinn var fullgiltur á Íslandi 2011 en samningurinn leggur skyldur á aðildarríkin að tryggja almenningi aðgengi að upplýsingum um umhverfismál, að geta haft áhrif á ákvarðanatöku sem snertir umhverfið og geta borið ákvarðanir er snerta umhverfið undir óháða úrskurðaraðila.    Sjá nánar í viðburði á Facebook og síðu UAR.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1639
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180312T104022
LAST-MODIFIED:20180312T104022
UID:1623@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2017
DESCRIPTION:Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta Kuðunginn fyrir árið 2017. Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en 25. mars næstkomandi.    Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1623
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20180110T151404
LAST-MODIFIED:20180110T151404
UID:1578@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Umhverfisráðstefna Gallup 11. janúar
DESCRIPTION:Gallup ásamt samstarfsaðilum býður til morgunráðstefnu í Norðurljósasal Hörpu 11. janúar næstkomandi. Þar munu sérfræðingar fyrirtækisins kynna niðurstöður nýrrar könnunar á viðhorfi Íslendinga til umhverfis- og loftslagsmála.    Sjá nánar í hlekk um ráðstefnuna og skráningu en einnig á Facebook.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1578
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20170918T214128
LAST-MODIFIED:20170918T214128
UID:1527@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Samgönguþing 28. september á Hótel Örk
DESCRIPTION:Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og samgönguráð boða til samgönguþings fimmtudaginn 28. september á Hótel Örk í Hveragerði. Þar verða kynntar áherslur í samgönguáætlun næstu ára og fjallað um ýmis mál í málstofum.    Sjá nánar hér í frétt Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.    &nbsp;
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1527
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20170830T103400
LAST-MODIFIED:20170830T103400
UID:1513@https://graenaorkan.is
SUMMARY:World Light Electric Vehicle Summit
DESCRIPTION:Græna orkan vill vekja athygli á ráðstefnunni World Light Electric Vehicle Summit, sem fer fram í Rotterdam dagana 22.-23. nóvember næstkomandi.    Nánari upplýsingar er að finna hér, á síðu ráðstefnunnar.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1513
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20170606T114114
LAST-MODIFIED:20170606T114116
UID:1500@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Umhverfismatsdagurinn 2017 - 7. júní
DESCRIPTION:Dagskrá Umhverfismatsdagsins er að þessu sinni helguð nýjum áskorunum og aðferðum á sviði umhverfismats.  Í fyrri hluta málþingsins verður fjallað um ýmsar nýjar áskoranir sem tengjast mati á umhverfisáhrifum, svo sem út frá nýlegum dómum og úrskurðum, alþjóðlegum markmiðum í loftslagsmálum, nýrri vistgerðarflokkun íslenskrar náttúru og lagaumgjörð mats á umhverfisáhrifum.  Í seinni hluta málþingsins munu síðan sérfræðingar sem koma að umhverfismati úr ólíkum áttum deila hugleiðingum um hvernig nýjar áskoranir og aðferðir birtast í þeirra störfum tengt náttúruvernd, samráði, línulögnum, vegagerð og fleira.    Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Skráning fer fram á vef Skipulagsstofnunar hér.    Facebook viðburð og frekari upplýsingar er að finna hér.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1500
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20170325T114748
LAST-MODIFIED:20170325T114748
UID:1497@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Fjölorka til framtíðar - málþing 30. mars
DESCRIPTION:Skeljungur og Íslensk NýOrka taka þátt í verkefni ESB  „Hydrogen Mobility Europe“ og standa fyrir spennandi og metnaðarfullu málþingi um nýjar lausnir í orkumálum, með sérstakri áherslu á hlutverk vetnis. Sjá nánar um málþingið og skráningu hér.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1497
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20170307T120019
LAST-MODIFIED:20170307T120124
UID:1489@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Innviðir fyrir rafbíla á Íslandi – Hvað er í boði?
DESCRIPTION:Græna orkan býður til kynningarfundar fimmtudaginn 9. mars klukkan 13 í Orkugarði, Grensásvegi 9. Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:    13:00 Fundarstjóri býður gesti velkomna  13:10 Magnús Ninni, Íslenska Gámafélagið  Hleðslustöðvar  13:25 Óskar Davíð Gústavsson, Johan Rönning  Hleðslutæki fyrir rafbíla og rekstur þeirra  13:40 Ólafur Davíð Guðmundsson, Hlaða  Án hleðslu kemstu ekki neitt  13:55 Stefán Birnir Sverrisson, Leiðir Verkfræðistofa  Hleðslustöðvar fyrir rafbíla og tengd þjónusta  14:10 Þorvarður Kristjánsson, GSG ehf  Uppsetning og frágangur á rafhleðslustöðvum  14:25 Kaffihlé  14:50 Bjarni Már Júlíusson, Orka náttúrunnar  Hvað hefur orka náttúrunnar fram að færa í  orkuskiptum?  15:05 Sigurður Ástgeirsson, Ísorka  Ísorka  15:20 Umræður  16:00 Fundarslit    Fundarstjóri verður Jón Björn Skúlason, verkefnastjóri Grænu orkunnar. Sjá einnig hér á Facebook viðburði.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1489
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20170116T125513
LAST-MODIFIED:20170116T125513
UID:1474@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Nordic EV Summit 7.-8. febrúar 2017
DESCRIPTION:Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig til þátttöku í Nordic EV Summit 2017 sem fer fram í Drammen í Noregi 7.-8. febrúar næstkomandi. Þar verður meðal annars fjallað um rafbílavæðingu á Norðurlöndum hingað til og frekari þróun rafbíla til framtíðar.    Sjá dagskrá hér og skráningu hér.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1474
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20170111T125559
LAST-MODIFIED:20170111T125559
UID:1469@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Vinningstillögur kynntar í Sjávarklasanum
DESCRIPTION:Græna orkan vekur athygli á því að út janúar mánuð er hægt að fræðast um vinningstillögur í Hugmyndasamkeppni Íslenska sjávarklasans, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Íslenskrar NýOrku um vistvænt skip á sýningu í Sjávarklasanum við Grandagarð 16.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1469
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160921T111736
LAST-MODIFIED:20160921T111817
UID:1429@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Ráðstefna Grænu orkunnar og Nordic Marina um vistvæna orkugjafa í haftengdri starfsemi
DESCRIPTION:  Græna orkan vill vekja athygli á ráðstefnunni Making Marine Applications Greener sem félagið stendur að í samstarfi við Nordic Marina, norrænt tengslanet um aukningu hluta vistvænna orkugjafa í haftengdri starfsemi.    Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 4. október frá 8:30 til 17:00. Í lok hennar verða veitt verðlaun í hugmyndasamkeppninni um Vistvænni skip. Fjölmargir fyrirlesarar munu fjalla um norræn verkefni og rannsóknir er tengjast vistvænni orku í haftengdri starfsemi og má þar nefna fulltrúa Wärtsilä, Bellona, Statens Vegvesen í Noregi, Prototech, Háskólans í Reykjavík, Selfa og EFLU. Innifalið í 7000 króna ráðstefnugjaldi er kaffi, hádegismatur, móttaka í lok dags auk ferðar með rafdrifnu seglskútunni Opal.    Hér má nálgast upplýsingar um ráðstefnuna og skrá sig til þátttöku:http://nordbio2016.yourhost.is/marina-4-october/    Nánari upplýsingar veitir Anna Margrét Kornelíusdóttir í síma 863-6506 og í netfangi amk@newenergy.is.    &nbsp;    &nbsp;
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1429
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160919T094451
LAST-MODIFIED:20160919T094517
UID:1425@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Fyrirlestur um noktun repju við orkuskipti  í samgöngum
DESCRIPTION:  Á samlokufundi fimmtudaginn 22. september kl. 12-13 mun Gylfi Árnason verkfræðingur fjalla um íslenska repju og möguleika á notkun hennar við orkuskipti í samgöngum.      Fyrirlesturinn er opinn öllum og skráning óþörf.  Sjá nánar hér á vef VFÍ  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1425
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160909T145518
LAST-MODIFIED:20160909T145518
UID:1421@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Alþjóðleg ráðstefna um lífhagkerfið og niðurstöður NordBio verkefna
DESCRIPTION:Ísland og Norræna ráðherranefndin boða til alþjóðlegrar ráðstefnu um lífhagkerfið og niðurstöður NordBio verkefna í Hörpu 5.-6. október 2016.  Yfirskrift ráðstefnunar er: MINDING THE FUTURE. Bioeconomy in a changing Nordic reality.     Meðal fyrirlesara eru Christine Lang, formaður þýska lífhagkerfisráðsins, Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Lene Lange, prófessor í lífefnafræði við Tækniháskólann í Kaupmannahöfn, Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands og Bryan Alexander, framtíðarfræðingur og rithöfundur. Þá munu Gunnar Bragi Sveinsson, ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála og Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar flytja opnunarerindi. Ráðstefnustjórn verður í höndum Þóru Arnórsdóttur og Stefáns Gíslasonar.    Ráðstefnan fer fram á ensku og skiptist í gagnvirka fyrirlestra og málstofur,  Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast hér.  Þátttökugjald er 15.000. Innifalið eru kaffiveitingar og hádegisverður. Skráningargjaldið hækkar í 20.000 þann 10. september.  Mikilvægt er að skrá þátttöku hér.    Ráðstefnan er lokahnykkur NordBio áætlunarinnar, sem er þriggja ára verkefni (2014-2016 ) um lífhagkerfið undir formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Undir merkjum NordBio hefur breiður hópur sérfræðinga á Norðurlöndum sameinað krafta sína og unnið að verkefnum sem stuðla að sjálfbærri nýtingu lifandi náttúruauðlinda. Markmið NordBio er að gera Norðurlöndin leiðandi í sjálfbærri framleiðslu og nýtingu lífauðlinda í því skyni að draga úr sóun og efla nýsköpun, grænt atvinnulíf og byggðaþróun.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1421
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160817T104122
LAST-MODIFIED:20160817T104122
UID:1407@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Ráðstefna Grænu orkunnar og Nordic Marina um vistvæna orkugjafa í haftengdri starfsemi
DESCRIPTION:  Græna orkan vill vekja athygli á ráðstefnunni Making Marine Applications Greener sem félagið stendur að í samstarfi við Nordic Marina, norrænt tengslanet um aukningu hluta vistvænna orkugjafa í haftengdri starfsemi.  Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 4. október frá 8:30 til 17:00. Í lok hennar verða veitt verðlaun í hugmyndasamkeppninni um Vistvæn skip. Fjölmargir fyrirlesarar munu fjalla um norræn verkefni og rannsóknir er tengjast vistvænni orku í haftengdri starfsemi og má þar nefna fulltrúa Wärtsilä, Bellona, Statens Vegvesen í Noregi, Prototech, Háskólans í Reykjavík, Selfa og EFLU. Innifalið í 7000 króna ráðstefnugjaldi er kaffi, hádegismatur, móttaka í lok dags auk ferðar með rafdrifnu seglskútunni Opal.   Hér má nálgast upplýsingar um ráðstefnuna og skrá sig til þátttöku: http://nordbio2016.yourhost.is/marina-4-october/
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1407
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160608T134917
LAST-MODIFIED:20160608T134917
UID:1375@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Nordic Energy Technology Perspectives 2016 kynning
DESCRIPTION:Næstkomandi mánudag, 13. júní,  munu norrænir vísindamenn og Alþjóða orkumálastofnunin (IEA), kynna skýrslu um viðhorf til orkutækni og þróun orkumarkaðarins á Norðurlöndunum til ársins 2050.    Skýrslan, Viðhorf til orkutækni á Norðurlöndunum 2016 (Nordic Energy Technology Perspectives 2016) er norræn útgáfa af sambærilegri alþjóðlegri skýrslu.  Í skýrslunni kemur fram að í gegnum svæðisbundið samstarf geta Norðurlönd náð nánast kolefnishlutlausu orkukerfi árið 2050 og dregið úr kolefnisútblæstri í Evrópu með útflutningi á hreinni raforku.    Sjá nánar á síðu Orkustofnunar og NETP, dagskrá fundarins hér.    Skráning til þátttöku hér.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1375
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160607T143438
LAST-MODIFIED:20160607T143439
UID:1373@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Umhverfismatsdagurinn 2016
DESCRIPTION:Skipulagsstofnun stendur fyrir árlegum Umhverfismatsdegi sínum 9. júní næstkomandi á Nauthóli. Sjá nánar um dagskrá og skráningu hér.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1373
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160516T152407
LAST-MODIFIED:20160516T214813
UID:1365@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur Grænu orkunnar 2016
DESCRIPTION:     Stjórn Grænu orkunnar boðar til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 25. maí næstkomandi klukkan 16. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Orkugarðs, Grensásvegi 9.    Aðeins félagsmenn mega sitja aðalfund og er einungis eitt atkvæði á hvert aðildarfyrirtæki eða –stofnun. Félagsmenn teljast þeir sem greiða aðildargjald og öðlast þannig kjörgengi og kosningarétt en aðildargjöld skulu greiðast fyrir 23. maí.    Dagskrá:    Kosning fundarstjóra og fundarritara     Skýrsla stjórnar lögð fram   Reikningar lagðir fram til samþykktar   Lagabreytingar   Ákvörðun árgjalds   Kosning stjórnar   Önnur mál   Fundi slitið    Á síðasta aðalfundi, sem jafnframt var fyrsti aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, voru fjórir einstaklingar kosnir í stjórn til tveggja ára. Ekki verður því kosið í stjórn að þessu sinni.    Tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði til afgreiðslu á fundinum, skulu hafa borist til amk@newenergy.is a.m.k. 7 dögum fyrir aðalfund.    Að loknum hefðbundnum fundarstörfum mun Ágústa Loftsdóttir, verkefnisstjóri hjá  Orkustofnun í eldsneytismálum og vistvænni orku, fara yfir helstu atriði nýrrar eldsneytisspár Orkuspárnefndar.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1365
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160413T114937
LAST-MODIFIED:20160413T114951
UID:1346@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Nordic Electric Bus Initiatives 2, 11.-12. maí í Helsinki
DESCRIPTION:11.-12. maí næstkomandi verður í Helsinki haldinn síðari hluti ráðstefnunnar Nordic Electric Bus Initiatives en fyrri hluti hennar fór fram í september 2015. Umfjöllunarefni ráðstefnunnar verða hvers kyns rafmagnsfarartæki til fólksflutninga, þar á meðal strætisvagnar og höfðar helst til opinberra starfsmanna á vegum sveitarfélaga, hafna og samgöngustofnana auk þeirra sem koma að framleiðslu faratækja og íhluta þeirra.    Sjá nánar um ráðstefnuna hér. Tekið er við skráningum hér til 30. apríl.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1346
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160408T152848
LAST-MODIFIED:20160408T152848
UID:1339@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Team Spark afhjúpar nýjan kappakstursbíl
DESCRIPTION:Team Spark afhjúpaði í vikunni nýjan kappakstursbíl sinn, TS16, sem liðið sendir til þátttöku í Formula Student. Þetta er sjötta skiptið sem liðið tekur þátt í keppninni og fimmti bíllinn sem gengur fyrir rafmagni. Græna orkan óskar liðsmönnum Team Spark hjartanlega til hamingju með þennan flotta bíl!    Hér má sjá myndband frá formlegri afhjúpun TS16.    [caption id="attachment_1341" align="aligncenter" width="300" caption="TS16 afhjúpaður við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands Mynd: Team Spark"][/caption]    &nbsp;
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1339
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160403T184029
LAST-MODIFIED:20160403T184029
UID:1332@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Vorfundur Landsnets 5. apríl 2016
DESCRIPTION:Græna orkan vill vekja athygli á árlegum vorfundi Landsnets sem að þessu sinni verður haldinn 5. apríl á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 9-11. Að þessu sinni verður fjallað um hlutverk raforku í tengslum við stöðu loftslagsmála á Íslandi og áskoranir varðandi þróun og uppbyggingu raforkuflutningskerfisins.    Sjá dagskrá og skráningarsíðu hér.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1332
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160313T201620
LAST-MODIFIED:20160313T201620
UID:1312@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Samráðsfundur Grænu orkunnar vegna aðgerðaáætlunar um orkuskipti í samgöngum
DESCRIPTION:Í nóvember síðastliðnum kynnti umhverfisráðherra sóknaráætlun ríkisstjórnar Íslands í loftslagsmálum sem sett var fram í tengslum við COP21 í París, aðildarríkjafund Loftslagssamingsins. Áætlunin er til þriggja ára og byggir á sextán verkefnum sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka bindingu  kolefnis úr andrúmslofti, styðja alþjóðleg loftslagsverkefni og efla getu stjórnvalda  til að standa við strangari skuldbindingar  í loftslagsmálum.    Átta verkefni hafa það markmið að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og leggja stjórnvöld áherslu á samstarf stjórnvalda og atvinnulífs í flestum þessara áhersluverkefna. Stjórnvöld hafa kallað Grænu Orkuna til samstarfs vegna verkefnisins Orkuskipti í samgöngum. Skipaður hefur verið starfshópur á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Grænu orkunnar sem hefur hafið vinnslu tillagna að aðgerðum til ná markmiðum sem íslensk stjórnvöld hafa sett sér um að hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum nái 10% árið 2020. Starfshópurinn hefur undanfarna tvo mánuði fundað með hagsmunaaðilum tengdum samgöngum á landi, haftengdri starfsemi sem og flugsamgöngum, og boðar nú til samráðsfundar félaga Grænu Orkunnar.    Opinn samráðsfundur Grænu Orkunnar verður haldinn að Grensásvegi 9, 17. mars 2016, klukkan 9. Á fundinum mun vinnuhópur kynna drög að aðgerðaáætlun og í kjölfarið munu fara fram umræður. Hér gefst tækifæri fyrir félaga Grænu Orkunnar til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og eru félagar hvattir til þess að mæta og taka virkan þátt í umræðum.    Þátttaka er opin öllum félögum Grænu orkunnar og er ókeypis. Vinsamlega skráðu þig til þátttöku með tölvupósti í netfangið amk@newenergy.is    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1312
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160212T083523
LAST-MODIFIED:20160212T124735
UID:1300@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Alþjóðleg ráðstefna um þróun bíl- og skipavéla knúnar metanóli 
DESCRIPTION:Græna orkan vill vekja athygli á fyrstu alþjóðlegu ráðstefnunni um þróun bíl- og skipavéla knúnar metanóli, sem haldin er af Carbon Recycling International. Hún ber yfirskriftina Ráðstefna um þróun bíl- og skipavéla knúnar metanóli til að efla umhverfisvænar samgöngur á sjó og landi.    Ráðstefnan mun veita breiða sýn yfir nýsköpun sviði umhverfisvænni bíl- og skipavéla undanfarin misseri, en þróun tækni til að nýta metanól er hröð, ekki síst þar sem krafa um orkuskipti með sjálfbæru eldsneyti fer vaxandi, bæði í samgöngum á sjó og landi og í sjávarútvegi. Dagskrá má finna hér.    Ráðstefnan verður haldin þriðjudaginn 23. febrúar n.k. í Gullteigi á Grand Hotel, Reykjavík. Aðgangur er öllum opinn. Boðið verður upp á kaffiveitingar og léttan hádegisverð. Skráning til þátttöku skal berast í netfangið conference@cri.is.    Fyrirlesarar eru helstu alþjóðlegu sérfræðingar á sviði bílvéla og véla fyrir skip og báta sem knúnar eru metanóli, fjallað verður um sprengihreyfla, tengiltvinnbíla og efnarafala.    Efni ráðstefnunnar ætti að höfða til allra sem áhuga hafa á umhverfisvænni lausnum í samgöngum og í sjávarútvegi og verður þar varpað nýju ljósi á ögranir og möguleika á þessu sviði.    Þá verður hulunni svipt af fyrstu bílunum sem ganga fyrir hreinu metanóli, frá bílaframleiðandum Geely sem er hluthafi í CRI. Prófanir á þessum bílum eru að hefjast hér á landi, í samvinnu CRI, Geely og Brimborgar.    Meðal sérfræðinga á ráðstefnunni eru yfirmenn rannsókna og þróunar Geely bílaverksmiðjanna og Fiat Chrysler samsteypunnar, sem unnið hafa að þróun bílvéla fyrir metanól og helsti ráðgjafi Wärtsilä í Finnlandi sem er meðal þeirra fyrirtækja sem nú framleiða metanólvélar fyrir skip og báta. Þá tala m.a. sérfræðingar frá MIT háskólanum í Boston, Chalmers tækniháskólanum í Gautaborg, Ghent háskóla og tækniháskólanum í Kaupmannahöfn um stöðu og horfur í þróun véla og tæknibúnaðar.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1300
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20160120T150845
LAST-MODIFIED:20160120T151538
UID:1275@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Norðursigling tilnefnd til nýsköpunarverðlauna WTTC
DESCRIPTION:Norðursigling á Húsavík hefur nú verið tilnefnd til WTTC Tourism of Tomorrow verðlauna. Fyrir rafmagnsskútuna Opal, er Norðursigling tilnefnd fyrir að vera fyrsta fyrirtæki heims til að bjóða upp á kolefnislausar hvalaskoðunarferðir. Þróun Opals sem umhverfisvæns báts fór fram með Rensea verkefni sem fjármagnað var af Nordic Innovation og var samstarfsverkefni Norðursiglingar og Bellona, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Íslenskrar NýOrku, Naust Marine, Lakeside Excursions, Wave Propulsion, Caterpillar og Clean eMarine.    Sjá nánar í frétt Nordic Innovation og Norðursiglingar.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1275
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20151228T101242
LAST-MODIFIED:20151228T101242
UID:1263@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Norðursigling tilnefnd til verðlauna - netkosning opin
DESCRIPTION:Norðursigling á Húsavík hefur verið tilnefnd til stærstu umhverfis- og viðskiptaverðlauna í Evrópu, GreenTec Awards, fyrir rafknúinn hvalaskoðunarbát sinn. Hægt er að taka þátt í netkosningu og styðja við fyrirtækið, sem tilnefnt er í flokki ferðamála (travel category). Sjá nánar í frétt mbl.is.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1263
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20151208T081308
LAST-MODIFIED:20151207T101900
UID:1250@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Rafbílavæðing á Íslandi - ráðstefna 11. desember 2015
DESCRIPTION:Föstudaginn 11. desember um Rafmagnsverkfræðingadeild Verkfræðingafélags Íslands (RVFÍ) standa fyrir ráðstefnu um rafbílavæðingu á Íslandi í sal Arion banka, Borgartúni 19. Dagskráin verður sem hér segir:    13:00    Setning ráðstefnu, Kristinn Andersen, formaður VFÍ og ráðstefnustjóri.    13:10    Stefnumótun íslenskra stjórnvalda – Hvað hefur gerst?  Jón Björn Skúlason, framkv.stj. Íslenskrar nýorku.    13:30   Áhugi og hagsmunir neytenda.  Runólfur Ólafsson, framkv.stj. Félags íslenskra bifreiðaeigenda.    13:50   Hraðhleðslustöðvar ON.  Jón Sigurðsson, viðskiptastjóri ON.    14:10   Sjálfbær uppbygging innviða fyrir rafbíla.              Axel Rúnar Eyþórsson, e1.    14:30   Aðferð KPMG við nálgun sannvirðis.  Val Gautaborgar á milli dísel- og rafmagsstrætós.              Gunnar Tryggvason, verkfræðingur hjá KPMG.    14:50   Kaffihlé    15:20   Kynningar bílaumboða og reynsla rafbílaeiganda.              Bílaumboðin kynna það nýjasta í rafbílum.  Þórður Helgason, rafmagnsverkfræðingur og eigandi rafbíls.  16:10   Umræður og fyrirspurnir.  Ráðstefnuslit.  Sjá nánar hér, á síðu RVFÍ.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1250
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20151130T093423
LAST-MODIFIED:20151203T141927
UID:1232@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Vel sóttir örfyrirlestrar um endurnýjanlegt innlent eldsneyti
DESCRIPTION:Græna orkan og Nordic Marina stóðu fyrir örfyrirlestrum um endurnýjanlegt innlent eldsneyti síðastliðinn fimmtudag. Um fjörutíu manns tóku þátt  og hlýddu á sex fyrirlestra:     Endurnýjanlegt eldsneyti - Ágústa Loftsdóttir, Orkustofnun   Endurnýjanlegt eldsneyti úr vetni koltvísýringi  - Benedikt Stefánsson, CRI   Framtíðar íblöndun í íslenskt eldsneyti - Sigurður Eiríksson, Íslenskt eldsneyti   Tímabundin endurvinnsla sláturúrgangs í Álfsnesi - Sigurður Ingólfsson, Lífdísill   Orkey ehf, lífdísill - Teitur Gunnarsson, Mannvit   Metanframleiðsla Sorpu, sjálfbærasti kosturinn? - Bjarni G. Hjarðar, Sorpa    Gestir voru áhugasamir og spurðu fyrirlesara fjölmargra spurninga. Græna orkan og Nordic Marina vilja koma á framfæri þakklæti til fulltrúa fyrirtækjanna sem tóku þátt og þakka gestur fyrir skemmtilegar umræður.  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1232
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20151127T095737
LAST-MODIFIED:20151126T100510
UID:1229@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Kynning á H2020 áætlun um umhverfi, loftslagsmál og auðlindir
DESCRIPTION:Næstkomandi miðvikudag, 2. desember, verður haldin kynning á samstarfsáætlunum Evrópusambandsins um umhverfi, lofstlagsmál og auðlindir. Attilo Gambardella, verkefnisstjóri frá aðalskrifstofu áætlunarinnar í Brussel, mun kynna áætlunina. Kynningin verður haldin frá 14-16 í fundarsal á 6. hæð í Borgartúni 30. Aðgangur er ókeypis en áhugasamir eru beðnir að skrá sig til þátttöku fyrir 1. desember hér.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1229
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20151126T092408
LAST-MODIFIED:20151126T092409
UID:1225@https://graenaorkan.is
SUMMARY:COP21: Nordic Marina fjallar um vistvæna haftengda starfsemi
DESCRIPTION:Nordic Marina, norrænt tengslanet sem vinnur að því að finna leiðir til orkuskipta í samgöngum á sjó, mun halda erindi á svæði Norrænu ráðherranefndarinnar á COP21 í París í næstu viku. Þar mun Jón Björn Skúlason fjalla um möguleika til innleiðingar vistvænna orkugjafa í skip. Sjá nánar hér.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1225
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20151120T143357
LAST-MODIFIED:20151124T134415
UID:1221@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Örfyrirlestrar um endurnýjanlegt innlent eldsneyti og eldsneytiseftirlit
DESCRIPTION:Græna orkan býður félögum til örfyrirlestra í Orkugarði fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 14.    Dagskráin verður eftirfarandi:     Eftirlit OS með endurnýjanlegu eldsneyti - Ágústa Loftsdóttir, Orkustofnun   Endurnýjanlegt metanól CRI - Benedikt Stefánsson, CRI   Framtíðar íblöndun í vistvænt eldsneyti – Sigurður Eiríksson, Íslenskt eldsneyti   Dísileldsneyti úr lífrænum úrgangi – Sigurður Ingólfsson, Lífdísill   Lífdísilvörur Orkeyjar – Teitur Gunnarsson, Mannvit   Metanframleiðsla Sorpu bs. Sjálfbærasti kosturinn? – Bjarni Hjarðar, Sorpa   Vistorka – veseni breytt í verðmæti – Guðmundur H. Sigurðarson, Vistorka    Reiknað er með að hver fyrirlestur taki um 10 mínútur og tími gefist fyrir 1-2 spurningar. Í lok dagskrár verða umræður og tækifæri til frekari fyrirspurna.  Aðgangur er ókeypis en skráning til þátttöku skal berast til amk@newenergy.is.  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1221
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20151109T105934
LAST-MODIFIED:20151109T105934
UID:1211@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Norðursigling hlýtur verðlaun fyrir rafknúna hvalaskoðunarbátinn Opal
DESCRIPTION:Norðursigling á Húsavík hlaut í liðinni viku silfurverðlaun World Responsible Tourism Awards 2015 fyrir Opal verkefni sitt, en Opal er rafknúinn hvalaskoðunarbátur, sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki hlýtur verðlaun á sýningunni World Travel Market.    Þá er einungis hálfur mánuður síðan fyritækið hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2015.    Sjá nánar á mbl.is og á vef Ferðamálastofu.    &nbsp;    &nbsp;
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1211
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20151029T105131
LAST-MODIFIED:20151110T093247
UID:1199@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Vinnstofa GO um gjaldtöku í samgöngum
DESCRIPTION:Græna orkan stóð nú í vikunni fyrir vinnustofu um gjaldtöku í samgöngum. Hún hófst á fjórum áhugaverðum kynningum.     Núverandi framkvæmd gjaldtöku í samgöngum á Íslandi - Benedikt S. Bendiktsson, Fjármála- og efnahagsráðuneyti   Gjaldtaka á grundvelli notkunar - Ásta Þorleifsdóttir, Innanríkisráðuneyti   Álag frá ökutækjum á vegakerfið - Þorbjörg Sævarsdóttir, Efla   Fjármögnun stærri framkvæmda - Þorsteinn R. Hermannsson, Mannvit    Að loknum stuttum fyrirlestrum var þátttakendum skipt í umræðuhópa sem ræddu eftirfarandi málefni:       Skattlagning dísilolíu með hliðsjón af VW hneykslinu. Er þörf á breyttum áherslum?   Mörkun skatttekna til gerðar og reksturs samgöngumannvirkja og breytingar sem verða með nýjum lögum um opinber fjármál   Mikilvægi fjarskipta fyrir gjaldtöku framtíðar – GPS og upplýsingamiðlun, aðferðir    Í lok vinnustofunnar söfnuðust þátttakendur saman á ný og farið var yfir helstu umræðuatriði og niðurstöður hvers hóps fyrir sig. Stjórn Grænu orkunnar þakkar gestum fyrir líflega og áhugaverða vinnustofu og fyrirlesurum fyrir gagnleg innlegg í umræður.  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1199
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150907T120307
LAST-MODIFIED:20150907T121924
UID:1168@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Rafbíladagur Iðunnar 25. september
DESCRIPTION:Iðan fræðslusetur stendur fyrir Rafbíladegi þann 25. september næstkomandi frá 13-18 að Vatnagörðum 20. Askja, Bílabúð Benna, BL, Even, Hekla og Toyota munu sýna raf- og tvinnbíla á staðnum en einnig verður boðið upp á örfyrirlestra.    Sjá dagskrá hér.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1168
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150904T155232
LAST-MODIFIED:20150904T155232
UID:1165@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Ráðstefna um vistvæna orkugjafa í haftengdri starfsemi
DESCRIPTION:Þann 21.-22 október næstkomandi verður haldin ráðtefna í Gautaborg um notkun vistvænna orkugjafa í haftendri startfsemi. Ráðstefnan, sem ber heitið Making Maritime Applications Greener er samstarfsverkefni Nordic Marina, Norðursiglingar og Caterpillar Propulsion. Í lok fyrri dags ráðstefnunnar verður gestum boðið að sigla hring um Gautaborgarhöfn um borð í Opal, rafknúnum seglbáti Norðursiglingar. Dagskrá lýkur 22. október með skoðunarferð um Stena Germanica, farþegaferju StenaLine sem gengur fyrir metanóli.    Opið er fyrir skráningar hér  og þar er einnig að finna dagskrána í heild sinni.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1165
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150820T080911
LAST-MODIFIED:20150820T081039
UID:1160@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Ráðstefna1.-2. sept: Nordic Electric Bus Initiatives
DESCRIPTION:1.-2. september næstkomandi verður haldin málstofa um þróun rafmagnsstrætisvagna í Lindholmen vísindagarði í Gautaborg. Það eru Swedish Forum for transport innovation og Nordic Energy Research sem standa að málstofunni. Markmið hennar er að efla tengsl á milli  framleiðenda, háskólasamfélagsins og þeirra sem koma að samgöngumálum,  miðla þekkingu og ræða möguleika og hindranir til rafvæðingar strætisvagna í almenningssamgöngum.    Þátttaka er ókeypis. Dagskrá og nánari upplýsingar er að finna hér og hér.    
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1160
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150811T094714
LAST-MODIFIED:20150811T094714
UID:1145@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Málþing um oxun metans næstkomandi föstudag, 14. ágúst
DESCRIPTION:Þann 14. ágúst næstkomandi munu EFLA verkfræðistofa og Samband íslenskra sveitarfélaga standa fyrir málþingi um oxun metans. Fjallað verður um meðhöndlun hauggass á nokkrum urðunarstöðum á Íslandi auk þess sem Alexandre Cabral mun kynna rannsóknir og aðferðir við oxun metans í Quebec í Kanada. Málþingið fer fram í húsakynnum Sorpu í Álfsnesi fyrir hádegi, 9-12.    Dagskrá má nálgast hér og skráning er ekki nauðsynleg.    [caption id="attachment_1148" align="aligncenter" width="300" caption="Kort af staðsetningu málþingsins í Álfsnesi."][/caption]  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1145
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150716T094800
LAST-MODIFIED:20150716T101836
UID:1118@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Málþing um oxun metans 14. ágúst 
DESCRIPTION:Þann 14. ágúst næstkomandi munu EFLA verkfræðistofa og Samband íslenskra sveitarfélaga standa fyrir málþingi um oxun metans. Fjallað verður um meðhöndlun hauggass á nokkrum urðunarstöðum á Íslandi auk þess sem Alexandre Cabral mun kynna rannsóknir og aðferðir við oxun metans í Quebec í Kanada. Málþingið fer fram í húsakynnum Sorpu í Álfsnesi fyrir hádegi, 9-12.    Dagskrá má nálgast hér og skráning er ekki nauðsynleg.  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1118
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150714T154829
LAST-MODIFIED:20150714T155334
UID:1106@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Rafknúið hvalaskoðunarskip vígt
DESCRIPTION:Norðursigling á Húsavík vígði á sunnudag Opal, rafknúið hvalaskoðunarskip sitt að viðstöddu fjölmenni. Þetta er í fyrsta skipti sem tækni sem þessi er notuð um borð í skipi en nota má skrúfubúnaðinn til að hlaða rafmagni  á rafgeymi skipsins þegar það siglir undir seglum.    Sjá nánar á mbl.is og Business Wire.            
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1106
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150708T160705
LAST-MODIFIED:20150708T160837
UID:1095@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Fyrsti rafknúni hvalaskoðunarbáturinn
DESCRIPTION:Næstkomandi sunnudag mun Norðursigling á Húsavík taka í notkun fyrsta rafknúna hvalaskoðunarbátinn. Tvímastra skonnortan Opal er fyrsta skipið með skrúfu­búnað sem jafn­framt get­ur hlaðið orku inn á geym­ana þegar það sigl­ir fyr­ir segl­um. Búnaður hennar hefur verið í þróun um skeið og er afrakstur samstarfs fjölmargrar innlendra og erlendra aðila.        Sjá nánar hér.    &nbsp;    &nbsp;    &nbsp;    &nbsp;    &nbsp;    &nbsp;    &nbsp;
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1095
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150615T110043
LAST-MODIFIED:20150615T110155
UID:1070@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Tíunda hraðhleðslustöðin á Íslandi opnuð
DESCRIPTION:Tíunda hraðhleðslustöð ON á Suður- og Vesturlandi var vígð 9. júní síðastliðinn við Dalbraut 1 á Akranesi. Fyrir eru stöðvar við höfuðstöðvar ON að Bæjarhálsi 1, við bifreiðaumboð BL við Sævarhöfða, við Smáralind, við Skeljung á Miklubraut, á Fitjum í Reykjanesbæ, við verslun IKEA í Garðabæ, í Borgarnesi, á Selfossi og við Fríkirkjuveg. Hraðhleðsluverkefni ON er unnið í samstarfi við BL ehf. og Nissan Europe, sem lögðu hleðslustöðvarnar endurgjaldslaust til verkefnisins. Orka náttúrunnar sér um uppsetningu þeirra og rekstur.    Sjá frétt ON hér.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1070
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150608T100543
LAST-MODIFIED:20150608T100544
UID:1067@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Ráðstefna: Nordic Electric Bus Initiatives
DESCRIPTION:1.-2. september næstkomandi verður haldin málstofa um þróun rafmagnsstrætisvagna í Lindholmen vísindagarði í Gautaborg. Það eru Swedish Forum for transport innovation og Nordic Energy Research sem standa að málstofunni. Markmið hennar er að efla tengsl á milli  framleiðenda, háskólasamfélagsins og þeirra sem koma að samgöngumálum,  miðla þekkingu og ræða möguleika og hindranir til rafvæðingar strætisvagna í almenningssamgöngum.    Þátttaka er ókeypis. Dagskrá og nánari upplýsingar er að finna hér.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1067
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150529T152942
LAST-MODIFIED:20150529T153815
UID:1051@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Græna orkan býður til fyrirlestrar Norsepower
DESCRIPTION:[caption id="attachment_1058" align="alignright" width="90" caption="Mynd fengin frá Norsepower"][/caption]    Græna orkan hefur undanfarin ár staðið fyrir opnum fyrirlestrum sem varða vistvæna orkugjafa, í samstarfi við ýmsa aðila. Að þessu sinni bjóða Græna orkan, Hafið – Öndvegissetur um sjálfbæra nýtingu og verndun hafsins, og Nordic Marina til opins fyrirlestrar um lausn til eldsneytissparnaðar fyrir meðalstór og stór skip.    Þann 11. núní næstkomandi mun Tuomas Riski, framkvæmdastjóri Norsepower í Finnlandi, fjalla um lausn fyrirtækis síns, Norsepower Rotor Sail Solution.    Tækifæri verður til fyrirspurna og umræðna að lokinni kynningu Norsepower og boðið verður upp á kaffi. Fyrirlesturinn verður haldinn að Grensásvegi 9, klukkan 14 og eru allir velkomnir. Sjá einnig hér.    Skráning til þátttöku sendist til amk@newenergy.is.    [caption id="attachment_1053" align="aligncenter" width="300" caption="Mynd fengin frá Norsepower"][/caption]    &nbsp;  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1051
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150512T142033
LAST-MODIFIED:20150512T142033
UID:1022@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Umhverfisvæn lúxusbifreið
DESCRIPTION:Á bílasýningu Bílgreinasambandsins í Fífunni um liðna helgi var lúxustvinnbifreið úr S línu Mercedes Benz frumsýnd. Bíllinn er búinn þriggja lítra V6 vél sem skilar 333 hestöflum en einnig rafmótor sem bætir við 123 hö. Eldsneytiseyðsla er 2,8 lítrar fyrir hverja 100 km og útblástur einungis 65 grömm CO2 á ekinn kílómeter.    Sjá nánar í frétt mbl.is og Öskju.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=1022
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150401T110049
LAST-MODIFIED:20150401T110147
UID:967@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur Grænu orkunnar
DESCRIPTION:Aðalfundur Grænu orkunnar var haldinn í Orkugarði 24. mars síðastliðinn.    Stjórnarformaður, Bryndís Skúladóttir, fór yfir skýrslu stjórnar og helstu verkefni Grænu orkunnar frá síðasta aðalfundi, sem haldinn var í nóvember 2014.    Fram kom í máli formanns að aðgerðir Grænu orkunnar hefðu skilað árangri m.a. í auknu hlutfalli endurnýjanlegs eldsneytis í samgöngu á landi og aukningu á fjölda vistvænna bifreiða á Íslandi. Sjá nánar í skýrslu stjórnar og skýrslu Grænu orkunnar, Orkuskipti í samgöngum – áfangaskýrsla 2015, sem gerð verður opinber á næstu vikum.    Fjórir stjórnarmenn úr röðum félagsmanna voru sjálfkjörnir á fundinum og verður stjórn Grænu orkunnar eftifarandi:     Ásta Þorleifsdóttir, innanríkisráðuneyti   Benedikt S. Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðuneyti   Berglind Rán Ólafsdóttir, Landsvirkjun   Erla Sigríður Gestsdóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti   Guðmundur Ólafsson, Mannviti hf.   Ólafur Jóhannsson, Samtökum iðnaðarins   Skúli K. Skúlason, Bílgreinasambandinu    Umhverfisráðuneyti mun skipa fulltrúa í stjórn á næstu dögum. Græna orkan þakkar Bryndísi Skúladóttur, Teiti Gunnarssyni og Ingvari Pétri Guðbjörnssyni fyrir farsælt samstarf.  &nbsp;    &nbsp;
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=967
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150325T173715
LAST-MODIFIED:20150325T173715
UID:959@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Stefnumótunarfundur Rannsóknasjóðs 27. mars
DESCRIPTION:Boðað hefur verið til opins fundar Rannsóknasjóðs föstudaginn 27. mars næstkomandi. Þar verða tillögur stjórnar sjóðsins byggðar á útkomu fyrri stefnumótunarfunda kynntar. Þátttakendum gefst tækifæri til að ræða tillögurnar í verkefnahópum og umræðum.    Allir eru velkomnir, sem áhuga hafa á að taka þátt í stefnumótun sjóðsins til framtíðar. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér.    Dagskráin verður eftirfarandi:    13:30-13:45 Rannsóknasjóður í ljósi aðgerðaáætlunar Vísinda- og tækniráðs 2014-2016.  Guðrún Nordal formaður stjórnar Rannsóknasjóðs.    13:45-14:00 Stefnumótunartillögur Rannsóknasjóðs.  Eiríkur Stephensen, sérfræðingur hjá Rannís.    14:00-15:00 Hópavinna    15:00 - 15:15 Kaffi    15:15 - 16:30 Umræður
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=959
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150324T093951
LAST-MODIFIED:20150323T155524
UID:957@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Grænir dagar Háskóla Íslands 25. - 27. mars
DESCRIPTION:GAIA, fé­lag meist­ara­nema í um­hverf­is- og auðlinda­fræðum við Há­skóla Íslands, stend­ur fyr­ir Græn­um dög­um í skól­an­um dag­ana 25. til 27. mars næstkomandi. Þemað í ár er hafið og umhverfisógnir sem að því steðja. Með Grænum dögum er ætlunin að vekja athygli á umhverfismálum með ýmsum viðbruðum, svo sem fyr­ir­lestr­um, pall­borðsum­ræðum, bíó­sýn­ingum og fleira.    Sjá nánar á mbl.is og Facebook síðu Grænna daga
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=957
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150321T150446
LAST-MODIFIED:20150321T150446
UID:951@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Aðalfundur Grænu orkunnar framundan
DESCRIPTION:Græna orkan boðar til aðalfundar félagsins þriðjudaginn 24. mars næstkomandi klukkan 15. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Orkugarðs, Grensásvegi 9.    Félagsmenn teljast þeir sem greiða aðildargjald  og öðlast þannig kjörgengi og kosningarétt en aðildargjöld skulu hafa verið greidd fyrir 15. mars síðastliðinn. Aðeins félagsmenn mega sitja aðalfund og er einungis eitt atkvæði á hvert aðildarfyrirtæki eða -stofnun.    Tilkynningar um þrjú framboð úr hópi félagsmanna bárust. Berglind Rán Ólafsdóttir býður sig fram fyrir hönd Landsvirkjunar. Ólafur Jóhannesson, CRI, býður sig fram fyrir hönd Samtaka iðnaðarins. Skúli K. Skúlason, BL, býður sig fram fyrir hönd Bílgreinasambandsins.    Dagskrá aðalfundar verður eftirfarandi:    1. Kosning fundarstjóra og fundarritara    2. Skýrsla stjórnar lögð fram    3. Reikningar lagðir fram til samþykktar    4. Lagabreytingar    5. Ákvörðun árgjalds    6. Kosning stjórnar    7. Önnur mál    8. Fundi slitið  
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=951
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150305T095500
LAST-MODIFIED:20150306T082852
UID:927@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Áhugaverð erindi á örfyrirlestrum Grænu orkunnar
DESCRIPTION:Fimmtudaginn 26. febrúar stóð Græna orkan, í samstarfi við Hafið, Nordic Marina og Stofnun Sæmundar fróða fyrir örfyrirlestrum um borð í varðskipinu Þór. Gestir hlýddu á fjölbreytt og áhugaverð erindi tengd vistvænni haftengdri starfsemi og almenn ánægja með vinnustofuna. Landhelgisgæslan, Nordic MARINA, RENSEA, CRI, EFLA, Hafið og ARK kynntu verkefni á sínum vegum.    Við þökkum þátttakendum og gestum fyrir komuna og Landhelgisgæslunni sérstaklega fyrir að bjóða varðskipið til afnota sem vettvang vinnustofunnar.    &nbsp;
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=927
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150213T134435
LAST-MODIFIED:20150213T134715
UID:897@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Umferðar- og samgönguþing í Reykjavík 19. febrúar
DESCRIPTION:Umferðar- og samgönguþing verða haldin í Hörpu fimmtudaginn 19. febrúar næstkomandi. Umferðarþingið stendur frá klukkan 9 til 12:15 en samgönguþingið frá klukkan 13:15 til 17. Þingin eru skipulögð af innanríkisráðuneytinu, samgönguráði og Samgöngustofu.    Sjá nánari umfjöllun og dagskrá hér, og skráningu hér.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=897
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20150114T113911
LAST-MODIFIED:20150114T144555
UID:864@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Kynningardagur Smart, Green and Integrated Transport Challenge
DESCRIPTION:Stjórnarsvið rannsókna og nýsköpunar og stjórnarsvið samgöngu- og flutningamála Evrópusambandsins standa fyrir kynningardegi Smart, Green and Integrated Transport Challenge þann 2. febrúar næstkomandi. Þar gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér auglýsingar eftir tillögum fyrir Smart, Green and Integrated Transport Challenge. Verkefnið, sem heyrir undir Horizon 2020, rammaáætlun ESB um rannsóknir og nýsköpun, miðar að því að auka samkeppnishæfni evrópska samgönguiðnaðarins og þróa samgöngukerfi sem nýtir auðlindir skynsamlega og þjónar bæði hagsmunum almennings og samfélagsins í heild á öruggan og umhverfisvænan hátt.    Nánari upplýsingar um kynninguna og skráningu má finna hér.    Fyrir áhugasama sem ekki sjá sér fært að taka þátt verður helstu kynningum streymt beint á heimasíðu verkefnisins.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=864
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:20140827
DTEND:20140830
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20140416T093257
LAST-MODIFIED:20140516T111152
UID:692@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Nordic Biogas Conference
DESCRIPTION:Ráðstefnan Nordic Biogas Conference fer fram dagana 27. - 29. ágúst í Reykjavík.    Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu ráðstefnunnar www.nordicbiogas.com     SORPA er gestgjafi ráðstefnunnar að þessu sinni en samstarfsaðilar eru:    SGC, Svens Gasteknisk Centre, Svíþjóð    Avfall Norge, Noregi    Branchföreningen för Biogas, Danmörk
LOCATION:Reykjavík, Iceland
URL:https://graenaorkan.is/?p=692
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:
DTEND:
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20130823T121409
LAST-MODIFIED:20130823T135517
UID:543@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Osló-Norræna vetnis- og rafalaráðstefnan 30.okt-1.nóv 2013
DESCRIPTION:&nbsp;    Þann 30 október hefst ráðstefna í Osló um verkefni Akershus/-Oslo um hreintækni á vegum sveitarfélagsins ( www.cleantransport.no ). Sú ráðstenfa stendur í einn og hálfan dag ( til kl 3) en strax á eftir fylgir norræna vetnis- og rafalaráðstefnan sjá www.hydrogen.no/hfcnordic . Í Noregi er nú að finna stóran flota rafhleðslubíla og rafhleðslustöðva. Einnig verður ítarlega fjallað um notkun Oslóborgar á vetnisstrætisvögnum og  vetnisbílanna sem keyptir voru í vor frá Koreu.    Á síðari hluta ráðstefnunnar verður greint  frá markasðetningu, samvinnu á Norðurlöndunum, nýjustu rannsóknum og verkefnum með nýjustu vetnis- og rafgeymanotkun í samgöngum. Drög að dagskrá má finna hér.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=543
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:20111018
DTEND:20111019
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20110913T154009
LAST-MODIFIED:20111018T114443
UID:223@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Vinnu- og stefnumótunarfundur í orkuskiptum í samgöngum
DESCRIPTION:Verkefnisstjórn Grænu orkunar boðar til vinnu- og stefnumótunarfundar í orkuskiptum í  samgöngum. Fundurinn verður haldinn þann 15. september í húsakynnum  Orkustofnunar á Grensásvegi 9 og hefst kl. 9.00. Áætlað er að honum ljúki kl.  12.30, en dagskrá er eftirfarandi;    9.00-9.15  Setning fundar og ávarp iðnaðarráðherra    9.15-9.40  Hvert erum við komin og hver eru næstu skref - Sverrir V Hauksson, form.  verkefnisstjórnar    9.40-9.50  Kaffihlé    9.50-11.3  Vinnuhópar að störfum    11.30-11.45  kaffihlé    11.45-12.30  Kynning vinnuhópa og samantekt    Vinnuhóparnir eru 4 og viljum við biðja þá sem ætla að mæta  á fundinn að STAÐFESTA komu sína og jafnframt að gefa þá upp hvaða hóp þeir óska  eftir að tilheyra.    hópar Græna orkan    VINSAMLEGAST STAÐFESTIÐ ÞÁTTTÖKU MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA PÓST Á asl@os.is FYRIR 10. SEPT. MEÐ  ÓSK UM HVAÐA HÓP HVER VILL TILHEYRA    Vonumst til að sjá sem flesta - þetta skiptir okkur öll máli.
LOCATION:
URL:https://graenaorkan.is/?p=223
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:20111018
DTEND:20111019
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20101201T153904
LAST-MODIFIED:20111018T114354
UID:221@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Vinnufundur í Orkugarði
DESCRIPTION:Græna Orkan boðar til vinnufundar í Orkugarði, Grensásvegi 9, þann 2. desember næstkomandi frá 13:15-17:00. Markmið fundarins er að kalla saman til skrafs og ráðagerða þá aðila sem hafa lýst yfir áhuga á þátttöku í verkefnum tengt orkuskiptum í samgöngum. Græna Orkan hefur nú verið starfandi í tæpt ½ ár og verið vistuð hjá iðnaðarráðuneytinu. Á sínum tíma lýsti iðnaðarráðherra því yfir að vonandi í framtíðinni væri hægt að byggja upp klasasamstarf milli aðila sem eru að vinna að verkefnum tengdum orkuskiptum í samgöngum. Eins og þið vitið öll þá eru orkuskipti og fyrirtæki tengd þeim frekar ung og flest enn á kafi í rannsóknar eða undirbúningsvinnu. Græna Orkan hefur því áhuga á að kanna hvort grundvöllur sé fyrir slíku klasasamstarfi eða hvort rétt sé að reka Grænu Orkuna á annan hátt – t.d. sem eins konar samtök, sem upplýsingamiðstöð fyrir fyrirtæki í þessum geira eða á annan hátt. Til að kanna þetta viljum við bjóða ykkur til þessa vinnufundar. Vonandi geta flestir séð sér fært að koma og viljum við heyra sem flestar hugmyndir.    Nánari upplýsingar og dagskrá fundarins    Til að halda utan um fjölda þátttakenda viljum við endilga biðja ykkur um að láta vita hvort þið takið þátt eða ekki með því að tilkynna þátttöku ykkar á glk@newenergy.is
LOCATION:Iceland
URL:https://graenaorkan.is/?p=221
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART:20111018
DTEND:20111019
DTSTAMP:20260424T144102
CREATED:20100606T153703
LAST-MODIFIED:20111018T114032
UID:218@https://graenaorkan.is
SUMMARY:Vinnufundur ráðstefna
DESCRIPTION:Vinnufundurinn, ráðstefnan var haldin í Háskólinn í Reykjavík, fimmtudaginn 03. júní sl.    Í tengslum við skipan nefndar iðnaðarráðherra um Orkuskipti í samgöngum setti undirbúningshópur verkefnisins  á fót vinnufund, ráðstefnu til að fá innsýn í þau verkefni sem nú eru í gangi á Íslandi og snúa að notkun á innlendu visthæfu eldsneyti.    Fjallað var um rafbíla,  metan,  vetni, lífdísel o.fl. og í lokin voru umræður þar sem gestum gafst kostur á að koma  með spurningar og ábendingar til nefndarmanna.    Dagskrá    Eftirfarandi eru glærukynningar tengdar fundinum:    Breytingar á bílum í rafbíla, Hlynur Stefánsson, HR    Breytingar á bílum í rafbíla, Helgi Þór Ingason, HÍ    Rafbílar og innviðir, Sighvatur Lárusson 2012    Framtíðarbílar, Ivan Mladenovic    Kínverskir rafbílar, Halldór Sigurþórsson    iMIEV á Íslandi, Sigurður Kr. Björnsson, Hekla    Samtök um hreinorkubíla Hilmar Hilmarsson    Staða vetnisrafbíla og tengd verkefni, Jón Björn Skúlason, Íslensk NýOrka    Vetnisrafbílar; Hallmar Halldórs    Sætó; Ari Arnórsson, bílasmiður    Metan staða og framtíðarhorfur, Einar Vilhjálmsson    Breyingar á bensínbílum í metanbíla, Lingþór Jósepsson Vélamiðstöðin    Lífdíselframleiðsla á Íslandi, Ásgeir Ívarsson, Mannvit    Kynning á merki átaksins, iðnaðarráðherra    Carbon Recycling  International
LOCATION:Iceland
URL:https://graenaorkan.is/?p=218
END:VEVENT
END:VCALENDAR