Fyrirlestraröðin er hafin á morgun!
Á morgun kl. 9.30 hefjum við mánaðarlegu fyrirlestraröðina okkar, í streymi.
9.30-10.30 — IðunnH2: Orkuskipti í flugi og eSAF vinnsla á Íslandi
Auður Nanna Baldvinsdóttir
Að þessu sinni fáum við til okkar Auði Baldvinsdóttur, framkvæmdastjóra IðunnarH2, sem flytur fyrirlestur sem ber heitið „Orkuskipti í flugi og eSAF vinnsla á Íslandi”. Auður mun segja frá verkefni IðunnH2 við Keflavíkurflugvöll, þar sem stefnt er á framleiðslu á sjálfbæru flugvélaeldsneyti (eSAF) upp á 70.000 tonn á ári frá 2029.
Nánari upplýsingar má einnig finna á vefsíðu.
Sjáumst á morgun!
