Aðalfundur Grænu orkunnar 2016

 

Stjórn Grænu orkunnar boðar til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 25. maí næstkomandi klukkan 16. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Orkugarðs, Grensásvegi 9.

Aðeins félagsmenn mega sitja aðalfund og er einungis eitt atkvæði á hvert aðildarfyrirtæki eða –stofnun. Félagsmenn teljast þeir sem greiða aðildargjald og öðlast þannig kjörgengi og kosningarétt en aðildargjöld skulu greiðast fyrir 23. maí.

Dagskrá:

Kosning fundarstjóra og fundarritara

  1. Skýrsla stjórnar lögð fram
  2. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  3. Lagabreytingar
  4. Ákvörðun árgjalds
  5. Kosning stjórnar
  6. Önnur mál
  7. Fundi slitið

Á síðasta aðalfundi, sem jafnframt var fyrsti aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, voru fjórir einstaklingar kosnir í stjórn til tveggja ára. Ekki verður því kosið í stjórn að þessu sinni.

Tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði til afgreiðslu á fundinum, skulu hafa borist til amk@newenergy.is a.m.k. 7 dögum fyrir aðalfund.

Að loknum hefðbundnum fundarstörfum mun Ágústa Loftsdóttir, verkefnisstjóri hjá  Orkustofnun í eldsneytismálum og vistvænni orku, fara yfir helstu atriði nýrrar eldsneytisspár Orkuspárnefndar.

Brunavélar í bílum bannaðar í Hollandi 2025?

Í Hollandi hefur hópur þingmanna verkamannaflokksins PvdA lagt fram ályktun  í neðri deild þingsins í Haag sem felur í sér þá stefnu að leyfa einungis sölu hreinorkubíla í landinu frá og með árinu 2025. Í þennan flokk falla bílar sem ekki gefa frá sér neinar gróðurhúsalofttegundir eða aðra mengun, rafbílar og vetnisbílar. Tillagan er umdeild enda ekki ljóst hvernig innviðir skulu styrktir til að mæta þörfum svo margra rafbíla en í henni er einnig kveðið á um að fjárfest skuli í sjálfakandi bílum  í þeim tilgangi að draga úr umferðarteppum í landinu.

Þess má geta að í París í desember fyrra settu 8 ríki í Bandaríkjum Norður Ameríku og 5 fullvalda ríki á stofn Alþjóðabandalag um hreinorkubíla (e. International Zero-Emission Vehicle Alliance) hvers stefna er að hraða rafbílavæðingu þannig að allir nýir bílar verði hreinorkubílar árið 2050.

Sjá nánar í frétt mbl.is og Inside EVs.