Skatttekjur ríkisins af hverjum bíl hafa dregist saman um 30% undanfarinn áratug. Á sama tíma hefur bílum fjölgað um þriðjung og útgjöld til vegakerfisins hafa stóraukist. Bílaleigubílar eiga sinn þátt í aukningunni. Þeim hefur fjölgað, en þó ekki nema um fimmtán þúsund á áratug.
Þetta kemur fram í frétt eftir Alexander Kristjánsson á ruv.is og vísar þar til upplýsinga er komu fram í erindi Stefaníu Kolbrúnar Ásbjörnsdóttur, hagfræðings hjá Samtökum atvinnulífsins á skattadegi Deloitte.
Á morgunverðarfundi Grænu orkunnar 14. desember mun Kolbrún Bjargmundsdóttir sérfræðingur frá Rannís kynna tækifæri í umsóknum til Evrópusambandsins með sérstakri áherslu á samgöngur og þá jafnt á landi sem og á hafi, sem heyra undir klasa 5.
Við sama tækifæri mun Anna Margrét Kornelíusdóttir verkefnastjóri hjá Íslenskri Nýorku kynna niðurstöður úr könnun á meðal rafbílaeigenda sem gerð var sumarið 2022 fyrir ráðuneyti umhverfis, orku og loftslags .
Fundarstjóri verður Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku.
Húsið opnar 8:30 með léttum morgunverði í Húsi atvinnulífsins en viðburðurinn verður 9:00-10:00. Einnig verður hægt að fylgjast með í streymi.
Rafrænir upplýsingadagar og tengslaráðstefna Framkvæmdastjórnar ESB verður haldin 15. og 16. desember nk. í tengslum við vinnuáætlun klasa 5 (Climate, Energy & Mobility).
Á upplýsingadögunum verða kynnt rannsóknar- og nýsköpunarviðfangsefni næstu vinnuáætlunar fyrir árin 2023-2024 en einnig verður rætt um fjármögnunarmöguleika samkvæmt nýju vinnuáætluninni.
Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr Loftslagssjóði RANNÍS.
Styrktegund er ein að þessu sinni og eru styrkir veittir til eins árs.Áhersla verður lögð á verkefni sem:
skila samdrætti í losun og stuðla að sjálfstæðu landsmarkmiði Íslands um að draga úr losun á beinni ábyrgð Íslands um 55% fyrir 2030.
hagnýta grunnþekkingu sem þegar er til staðar, hafa möguleika á að nýtast sem víðast í samfélaginu og beinast að aðilum sem hafa talsverða möguleika á að draga úr losun.
Græna orkan og Orkustofnun kynntu nokkur verkefni Orkusjóðs á Nauthól í Reykjavík, þriðjudaginn 25. október kl. 13-15 en einnig var hægt að horfa á kynninguna í streymi.
Græna orkan og Orkustofnun kynna nokkur verkefni Orkusjóðs á Nauthól, Nauthólsvegi 106, Reykjavík, þriðjudaginn 25. október kl. 13-15.
Úthlutun styrkja árið 2022 var sú mesta frá upphafi og endurspeglar aukinn kraft stjórnvalda til orkuskipta. Verkefnin eru afar fjölbreytt og misstór og eru unnin í mismunandi starfsgreinum. Ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála setur fundinn. Kaffi verður á boðstólum og spjall mögulegt eftir að öllum kynningum er lokið.
Þau sem vilja mæta á staðinn verða að skrá sig en einnig má horfa á kynninguna í streymi.
Posted by Orkustofnun on Tuesday, October 25, 2022
Úthlutun styrkja árið 2022 var sú mesta frá upphafi og endurspeglar aukinn kraft stjórnvalda til orkuskipta. Verkefnin eru afar fjölbreytt og misstór og eru unnin í mismunandi starfsgreinum. Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála setti fundinn og Anna Margrét Kornelíusdóttir var fundarstjóri.
29. september síðastliðinn, á alþjóða siglingadaginn, fór fram ráðstefnan Stolt siglir fleyið mitt – öryggi og grænar lausnir í siglingum. Hún var haldin á Grand Hótel Reykjavík og var samstarf Fagráðs um siglingar, Samgöngustofu, Innviðaráðuneytis og Grænu orkunnar. Dagskrána má sjá á vef Samgöngustofu og upptöku frá viðburðinum má nálgast hér fyrir neðan.
Fagráð um siglingamál / Siglingaráð, í samstarfi við Grænu orkuna og Samgöngustofu, efnir til hálfs dags ráðstefnu þann 29. september sem jafnframt er alþjóðasiglingadagurinn.
Yfirskrift viðburðarins er Stolt siglir fleyið mitt – öryggi og grænar lausnir á sjó og markmið hans er að kynna nýjar lausnir í sjósókn og siglingum sem draga úr umhverfisáhrifum og/eða auka öryggi sjófarenda, þ.m.t. orkuskipti, bætta orkunýtingu og siglingaöryggi.
Aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, fer fram fimmtudaginn 5. maí 2022 13:30-16:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Orkuskipti: Umbreytingar til 2030. Fyrir þá sem það kjósa, verður hægt að fylgjast með í streymi. Skráning á viðburðinn fer fram hér.
Dagskráin verður eftirfarandi:
13:30 Fundarsetning
13:40 John Winterbourne, Ballard Power Systems
14:00 Ómar Sigurbjörnsson, Carbon Recycling International
14:20 Auður Nanna Baldvinsdóttir, Samtökum vetnis- og rafeldsneytisframleiðenda
14:40 Hefðbundin aðalfundarstörf
15:15 Fundarslit
Boðið verður upp á léttar veitingar að lokinni dagskrá.
Fyrir þá sem mæta í Borgartún er gott að hafa í huga að strætisvagnar 4, 12, og 16 ganga þangað og auðvelt er að nálgast rafskútur víðs vegar um borgina sem má nota til að komast á leiðarenda.
Aðalfundur Grænu orkunnar, Samstarfsvettvangs um orkuskipti, fer fram fimmtudaginn 5. maí 2022 13:30-15:30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Dagskrá aðalfundar verður sem hér segir og samkvæmt samþykktum:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar lögð fram
Reikningar lagðir fram til samþykktar
Breytingar á samþykktum
Ákvörðun árgjalds
Kosning stjórnar
Önnur mál
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum fer fram málstofa sem ber yfirskriftina Orkuskipti: Umbreytingar til 2030. Boðið verður upp á erindi frá ýmsum aðilum sem tengjast eldsneytisframleiðslu og -dreifingu, bæði hefðbundnu kolvetni og vistvænu eldsneyti.
Í lok fundarins verða niðurstöður kosninga kynntar og fundi slitið um klukkan 15:30.
Allir félagsmenn mega sitja aðalfund og einungis er eitt atkvæði á hvert aðildarfyrirtæki eða -stofnun. Félagar teljast þeir sem greiða félagsgjald og þeir einir hafa atkvæðarétt á aðalfundi. Félagsgjald er kr. 50.000 fyrir fyrirtæki með fleiri en 25 starfsmenn en kr. 12.500 fyrir minni fyrirtæki og einstaklinga. Reikningar fyrir aðildargjöldum 2022 ættu þegar að hafa borist til aðildarfyrirtækja og hafa eindaga 4. maí.
Tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði til afgreiðslu á fundinum, þurfa að berast félaginu a.m.k. 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund, þ.e. 28. apríl 2022, til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.is.
Tímabil tveggja stjórnarmanna sem sitja fyrir hönd atvinnulífsins lýkur á aðalfundinum. Þeir hyggjast bjóða sig fram til áframhaldandi stjórnarsetu en framboð til stjórnar eru velkomin og er stjórnarseta til tveggja ára.
Þeir félagar er hyggjast bjóða sig fram í stjórn skulu tilkynna framboð til Önnu Margrétar Kornelíusdóttur í netfangið amk@newenergy.isfyrir 28. apríl 2022.