Græna orkan vill vekja athygli á umfjöllun um metan á visir.is. Smellið hér fyrir grein Finns Thorlacius.

Græna orkan vill vekja athygli á umfjöllun um metan á visir.is. Smellið hér fyrir grein Finns Thorlacius.

Nýverið óskaði óskaði ríkisstjórn Trump eftir 72% niðurskurði á fjárveitingum til verkefna og rannsókna tengdum endurnýjanlegri orku og orkusparnaði fyrir árið 2019. Er þetta í takt við orð forsetans í árlegri stefnuræðu sinni, þar sem hann fjallaði um “fallegu hreinu kolin.”
Sjá nánar í frétt Washington Post.
Nýverið var tilkynnt að NCE Maritime CleanTech í Noregi hefði hlotið 11,5 milljón evra styrk úr Horizon 2020 prógrammi Evrópusambandsins til að þróa rafdrifna ferju sem ganga mun á milli Stavanger og Hommersåk.

Við hjá Grænu orkunni hlökkum til að fylgjast með verkefninu á næstu árum. Sjá nánar í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Nýlega afhenti The London Electric Vehicle Company (LEVC) leigubílstjóranum David Harris lykla að fyrsta rafvædda leigubíl Lundúna borgar. Bíllinn er af gerðinni TX og segir Harris að hann muni spara 5-600 pund á mánuði sem annars færu í eldsneytiskaup. Afhendingin kemur til að reglu sem tók gildi um síðastliðin áramót, en samkvæmt henni þurfa nýir leigubílar að geta haft útblástur innan við 50 grömm CO2 á ekinn kílómeter og hafa 30 mílna drægi með þetta útblástursgildi. Þetta kallast zero emission capable.
Sjá nánar í frétt Climate Action.

Í nýútkominn skýrslu IRENA (Alþjóðastofnun um endurnýjanlega orkugjafa) Renewable Power Generation Costs 2017 kemur fram að orkuframleiðsla með endurnýjanlegum orkugjöfum hafi haldið áfram að falla á árinu 2017. Enn fremur segir í skýrslunni að verð á raforku frá vindorku í landi hafi lækkað um 18% á árunum 2010 til 2017 og sé nú um USD 0.04/kWh, sem er mjög samkeppnishæft.
Sjá nánar í útdrætti og skýrslunni í heild.

Á árinu 2017 var rúmur helmingur (52%) seldra bifreiða í Noregi rafbíll eða tvinnbíll og er það aukning úr 40% frá árinu áður. Hollendingar voru í öðru sæti en þar í landi var hlutfall rafbíla og tvinnbíla af seldum bílum á árinu 6,4%.
Sjá nánar í umfjöllun Autoblog.
Höfuðstöðvum BMW í München, sem löngum hafa verið kallaðar “sýlindrarnir fjórir” vegna útlits síns, var breytt nýlega, líklega til marks um stefnu stjórnenda BMW. Nú lítur byggingin út eins og fjórar rafhlöður og þar að auki stendur: Framtíðin felst í rafmagninu. Harald Krüger, stjórnarformaður BMW Group, hefur einmitt sagt að stjórnin sé í engum vafa um þá staðreynd að rafmótorar í bílum vísi veginn til framtíðar og ráði miklu um velgengni fyrirtækisins.
Sjá nánar í frétt mbl.is.
