Græna orkan óskar félögum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þakkar árið sem er að líða. Við hlökkum til að takast á við verkefni ársins 2017!

Græna orkan óskar félögum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þakkar árið sem er að líða. Við hlökkum til að takast á við verkefni ársins 2017!

Frumkvöðlafyrirtækið Nanoflowcell tilkynnti nýverið að því hefði tekist að þróa aðferð til að nýta saltpækil sem aflgjafa fyrir rafbíla. Tæknin byggist á því að tvenns konar rafvökva, jónalausnum, er dælt í sitt hvorn tank í bíl Nanoflowcell, sem kallast Quarantino. Er vökvarnir blandast handan svokallaðrar flæðiskilju verður til raflausn er leysir frá sér raforku til að knýja bílinn. Fróðlegt verður að fylgjast með áframhaldandi prófun og þróun Quarantino bílsins.
Sjá nánar í frétt mbl.is.
Borgarstjórar Parísar, Madrídar, Aþenu og Mexíkóborgar tilkynntu nú fyrir skömmu eftir C40 ráðstefnu borgarstjóra um loftslagsmál að þeir hygðust banna akstur dísilbíla í miðborgum sínum. Fjöldi þeirra hefur farið vaxandi síðastliðin ár m.a. vegna þess að útblástur dísilbíla inniheldur hlutfallslega minna koldíoxíð en útblástur bensínbíla. Bruni dísils gefur hins vegar af sér köfnunarefnisdíoxíð og sót, sem valda mikilli mengun í stórborgum og geta stuðlað að öndunarfærasjúkdómum. Talsmaður Friends of the Earth, Jenny Bates, fagnar ákvörðuninni og telur hana vera mikilvægur liður í því að draga úr loftslagsáhrifum af manna völdum.
Sjá nánar hér í grein Climate Action.
Norðmenn hafa lengi stefnt að því að draga smátt og smátt úr ívilnunum og skattaafsláttum af rafbílum sem hafa gert Noreg að fjölmennasta rafbílasamfélagi heims. Nú hefur norska ríkið ákveðið að framlengja gildistíma skattaafsláttar af rafbílum til ársins 2020.
Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, segir vistvæna bíla vera í stórsókn og í dag bjóði Hekla upp á 40 mismunandi bíltegundir og útfærslur í vistvænum flokki frá Volkswagen, Audi, Mitsubishi og Skoda. Sala umboðsins á vistvænum bílum er 50% meiri í ár en í fyrra.
Sjá nánar í frétt úr bílablaði mbl.is.
Bill Gates segir í nýlegu viðtali við The Atlantic að einkageirinn sé einfaldlega of eigingjarn til að þróa hreina og hagkvæma orkugjafa sem leyst gætu jarðefnaeldsneyti af hólmi. Í sama viðtali tilkynnti hann um 2 milljarða dollara framlag til málefnisins og skoraði á aðra til að gera slíkt hið sama, til þess að Bandaríkin mættu verða kolefnislaus árið 2050.
Sjá viðtalið í heild sinni hér.
Franski lestaíhlutaframleiðandinn Alstom hefur nú hafið prófanir á vetnisdrifinn lest sinni, Coradia iLint, en reiknað er með að hún verði tekin í notkun í desember 2017. Þá mun lestin, sem hefur um 500 km drægi og mun ganga á milli Buxtehude og Cuxhaven, ganga fyrir vetni sem er afgangsafurð frá efnaiðnaði á svæðinu.
Sjá nánar í frétt hér.

Mercedes Benz s550e tvinnbílinn verður fyrstur sinnar tegundar til að bjóða upp á möguleikann á þráðlausri hleðslu. Notað verður Qualcomm Halo kerfi í hleðsluna en ekki hafa verið gefnar frekari upplýsingar um það, aðrar en að nýtni þess verði 90%.
Sjá nánar í grein Green Car Reports hér.

Guðmundur Tyrfingsson ehf hefur fest kaup á rafmagnsrútu frá kínverska framleiðandanum Yutong Eurobus. Bifreiðin verður frumsýnd á samgöngu- og umferðarsýningu í Gautaborg í vikunni en verður í framhaldinu flutt hingað til lands.
Sjá nánar í frétt mbl.is.