Í dag eru það einungis Honda og Toyota sem bjóða upp á vetnisbíla en líklegt er að það breytist á næstu árum. Í tímaritinu Autocar kemur fram að Benz framleiðandinn muni kynna vetnisútgáfu af smájeppanum GLC á bílasýningunni í Frankfurt hausti 2017 og bíllinn verði kominn á götuna 2018.
Author Archives: Anna
Vel sóttir örfyrirlestrar um endurnýjanlegt innlent eldsneyti
Græna orkan og Nordic Marina stóðu fyrir örfyrirlestrum um endurnýjanlegt innlent eldsneyti síðastliðinn fimmtudag. Um fjörutíu manns tóku þátt og hlýddu á sex fyrirlestra:
- Endurnýjanlegt eldsneyti – Ágústa Loftsdóttir, Orkustofnun
- Endurnýjanlegt eldsneyti úr vetni koltvísýringi – Benedikt Stefánsson, CRI
- Framtíðar íblöndun í íslenskt eldsneyti – Sigurður Eiríksson, Íslenskt eldsneyti
- Tímabundin endurvinnsla sláturúrgangs í Álfsnesi – Sigurður Ingólfsson, Lífdísill
- Orkey ehf, lífdísill – Teitur Gunnarsson, Mannvit
- Metanframleiðsla Sorpu, sjálfbærasti kosturinn? – Bjarni G. Hjarðar, Sorpa
Kynning á H2020 áætlun um umhverfi, loftslagsmál og auðlindir
Næstkomandi miðvikudag, 2. desember, verður haldin kynning á samstarfsáætlunum Evrópusambandsins um umhverfi, lofstlagsmál og auðlindir. Attilo Gambardella, verkefnisstjóri frá aðalskrifstofu áætlunarinnar í Brussel, mun kynna áætlunina. Kynningin verður haldin frá 14-16 í fundarsal á 6. hæð í Borgartúni 30. Aðgangur er ókeypis en áhugasamir eru beðnir að skrá sig til þátttöku fyrir 1. desember hér.
COP21: Nordic Marina fjallar um vistvæna haftengda starfsemi
Nordic Marina, norrænt tengslanet sem vinnur að því að finna leiðir til orkuskipta í samgöngum á sjó, mun halda erindi á svæði Norrænu ráðherranefndarinnar á COP21 í París í næstu viku. Þar mun Jón Björn Skúlason fjalla um möguleika til innleiðingar vistvænna orkugjafa í skip. Sjá nánar hér.
Örfyrirlestrar um endurnýjanlegt innlent eldsneyti og eldsneytiseftirlit
Græna orkan býður félögum til örfyrirlestra í Orkugarði fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 14.
Dagskráin verður eftirfarandi:
- Eftirlit OS með endurnýjanlegu eldsneyti – Ágústa Loftsdóttir, Orkustofnun
- Endurnýjanlegt metanól CRI – Benedikt Stefánsson, CRI
- Framtíðar íblöndun í vistvænt eldsneyti – Sigurður Eiríksson, Íslenskt eldsneyti
- Dísileldsneyti úr lífrænum úrgangi – Sigurður Ingólfsson, Lífdísill
- Lífdísilvörur Orkeyjar – Teitur Gunnarsson, Mannvit
- Metanframleiðsla Sorpu bs. Sjálfbærasti kosturinn? – Bjarni Hjarðar, Sorpa
- Vistorka – veseni breytt í verðmæti – Guðmundur H. Sigurðarson, Vistorka
Enn slá Norðmenn met í rafbílakaupum
Norðursigling hlýtur verðlaun fyrir rafknúna hvalaskoðunarbátinn Opal
Norðursigling á Húsavík hlaut í liðinni viku silfurverðlaun World Responsible Tourism Awards 2015 fyrir Opal verkefni sitt, en Opal er rafknúinn hvalaskoðunarbátur, sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki hlýtur verðlaun á sýningunni World Travel Market.
Þá er einungis hálfur mánuður síðan fyritækið hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2015.
Sjá nánar á mbl.is og á vef Ferðamálastofu.
Vindknúnir Renault rafbílar á skosku Hebrides eyjum
Íbúar skosku Hebrides eyjanna eru vanir roki og hafa nú tekið sig til og beislað það. Pentland Road wind farm hefur sett upp sex vindmyllur sem framleiða rafmagn á Renault rafbíla. Rafbílana, sem eru af tegundinn Zoe og Kangoo, má svo leigja í lengri eða styttri ferðir um eyjarnar. Verkefnið hefur það að markmiði að útvega gestum og íbúum eyjanna endurnýjanlega orku og nýta til þess staðhætti.
Sjá nánar hér.
Vinnstofa GO um gjaldtöku í samgöngum
Græna orkan stóð nú í vikunni fyrir vinnustofu um gjaldtöku í samgöngum. Hún hófst á fjórum áhugaverðum kynningum.
- Núverandi framkvæmd gjaldtöku í samgöngum á Íslandi – Benedikt S. Bendiktsson, Fjármála- og efnahagsráðuneyti
- Gjaldtaka á grundvelli notkunar – Ásta Þorleifsdóttir, Innanríkisráðuneyti
- Álag frá ökutækjum á vegakerfið – Þorbjörg Sævarsdóttir, Efla
- Fjármögnun stærri framkvæmda – Þorsteinn R. Hermannsson, Mannvit
- Skattlagning dísilolíu með hliðsjón af VW hneykslinu. Er þörf á breyttum áherslum?
- Mörkun skatttekna til gerðar og reksturs samgöngumannvirkja og breytingar sem verða með nýjum lögum um opinber fjármál
- Mikilvægi fjarskipta fyrir gjaldtöku framtíðar – GPS og upplýsingamiðlun, aðferðir
Danir ívilna vetnisbílum til 2018
Danska ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita áfram skattaafslátt vegna kaupa á vetnisbílum til ársins 2018, en til stóð að gildistími ívilnana yrði til ársloka 2015. Þessu fagnar sérstaklega fyrirtækið H2 Logic sem rekur í dag 7 vetnisstöðvar víðs vegar um Danmörku og gerir ráð fyrir að opn 4 til viðbótar á næsta ári.
Sjá nánar í fréttatilkynningu H2 Logic.